ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

Ögmundur segir dómsmál gegn nímenningum út í hött

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:40 › 8. maí 2010
Ögmundur Jónasson segir málaferlin gegn nímenningunum vera út í hött.

Ögmundur Jónasson segir málaferlin gegn nímenningunum vera út í hött.

Ögmundur Jónasson þingmaður Vinstri grænna segir málaferlin gegn nímenningunum sem trufluðu störf Alþingis í desember 2008 vera út í hött. Þetta kemur fram í viðtali við Ögmund í þriðja og ný útkomnu tölublaði mánaðarritsins Rósta.

Ögmundur segir dæmi þess í íslenskri sögu að stigið hefur verið á fólk sem hefur gripið til mótmæla. „Til dæmis árið 1949 þegar fólki var borið ljúgvitni og svipt kosningarétti vegna mótmæla við Alþingishúsið. Allt finnst mér þetta algerlega út í hött - fullkomlega út í hött!“ segir Ögmundur.

Ögmundur segir að ekki megi „krimínalísera“ réttlætisbaráttu á slíkan hátt. „Fólkið var ekkert að stela lýðræðinu eða frelsinu frá þjóðinni. Það var verið að öskra það inn í þingsalinn, inn í löggjafarsamkundu sem búið hafði í haginn fyrir gróða og spillingaröfl.“

Ögmundur talar einnig um það í viðtalinu að á landinu þurfi að ríkja viðvarandi byltingarástand. En hann útskýrir slíkt ástand þannig að hér þurfi að vera galopið þjóðfélag, þar sem allir eigi aðgang að umræðunni og að leynd sé ekki við lýði.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.