ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

„Ég skil ekki hvers vegna ég er ekki ákærður"

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:00 › 7. maí 2010
  • Lárus Páll hefur réttarstöðu sakbornings en hefur ekki verið ákærður.

    Lárus Páll hefur réttarstöðu sakbornings en hefur ekki verið ákærður.

Lárus Páll Birgisson sjúkraliði krefst þess að verða ákærður fyrir árás á Alþingi. Lárus er með réttarstöðu sakbornings í málinu en hefur ekki verið kærður eins og hinir níu. Hann skilur ekki hversvegna. Lárus var einn þeirra sem fór inn í Alþingishúsið í desember 2008 en níu manns hafa verið ákærð fyrir árás á Alþingi vegna þeirra atburða.

„Ég var sá eini sem var kallaður í yfirheyrslu vegna þessa máls sem ekki var ákærður,“ segir Lárus Páll. Hann hefur ekki heyrt neitt meira frá lögreglunni vegna málsins. Hann segist ekki hafa hegðað sér öðruvísi en aðrir sem fóru inn í húsið þennan dag og ætti samkvæmt því að vera á lista nímenningana.

„Ég bara krefst þess að vera kærður með þeim. Ég krefst þess að jafnt sé látið ganga fyrir alla,“ segir Lárus. Rúmlega 400 manns hafa skrifað undir yfirlýsingu þar sem þau játa að hafa tekið þátt í árás á Alþingi í Janúarbyltingunni. Þar er þess krafist að allir á listanum verði ákærðir eins og nímenningarnir.

Steinar Kristinn Sigurðsson var einn þeirra 30 sem fóru inn í Alþingishúsið þennan dag. Hann var ekki kallaður í yfirheyrslur vegna málsins og hefur því ekki réttarstöðu grunaðra. Hann skilur ekki hvernig valið fór fram á þeim níu sem voru kærðir. „Við tókum öll ábyrgð á okkar gjörðum. Afhverju við erum ekki öll kærð fyrst að þau eru kærð? Það vitum við ekki.“

„Það er afskaplega fáránleg og vond tilfinning að horfa á fólkið sem var með manni í þessu dæmi, sitja undir ákærum í dómssal á meðan ekkert er gert við okkur hin," segir Steinar sem þvertekur fyrir að um skipulagðan hóp hafi verið að ræða, þetta hafi verið fólk allsstaðar að og margir hafi kynnst í kringum þetta mál.

Þegar hann er spurður hversvegna hann telji suma hafa verið ákærða en ekki aðra segir hann: „þeir halda að þeir séu að brjóta höfuðið af kolkrabba byltingarinnar, en virðast ekki fatta að þeir eru að díla við heila reiða þjóð en ekki 30 einstaklinga sem mótmæltu.

„Við vorum að sinna skyldu okkar,“ segir Lárus Páll sem eitt sinn var valinn fyndnasti maður Íslands. „það er borgaraleg skylda hvers hugsandi einstaklings að láta ekki landráðamenn vaða uppi.“

Mál nímenningana verður næst tekið fyrir miðvikudaginn 12. maí. Þau eru ákærð fyrir árás á Alþingi og geta átt yfir höfði sér 1 - 16 ára fangelsisdóm.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?