Hreiðar Már var handtekinn fyrr í dag í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara á málefnum Kaupþings.
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, var handtekinn í dag í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara á málefnum Kaupþings. Krafist var tveggja vikna gæsluvarðhaldi yfir Hreiðari Má fyrr í dag fyrir héraðsdómi Reykjavíkur.
Ólafur Hauksson, sérstakur saksóknari, sendi rétt í þessu frá sér tilkynningu þar sem kom fram að einn sakborningur í máli tengdu Kaupþingi hefði verið handtekinn fyrr í dag í lok skýrslutöku sem hófst í morgun. Ólafur nafngreinir ekki manninn en öruggar heimildir DV herma að um sé að ræða Hreiðar Má.
Í tilkynningu Ólafs kemur fram að farið hafi verið fram á gæsluvarðhald yfir manninum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í kjölfarið til að tryggja rannsóknarhagsmuni. Ólafur segir í tilkynningunni að til rannsóknar sé grunur um „skjalabrot skv. 17. kafla almennra hegningarlaga, auðgunarbrot skv. 26. kafla almennra hegningarlaga, brot gegn lögum um verðbréfaviðskipti þ.m.t. markaðsmisnotkun og loks brot gegn hlutafélagalögum.“ Í tilkynningunni frá Ólafi kemur fram að til grundvallar rannsókninni séu kærur frá Fjármálaeftirlitinu og önnur gögn.
Í tilkynningu Ólafs kemur að héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur hafi ákveðið að taka sér lögmæltan frest til uppkvaðningar úrskurðar.
DV hefur ekki náð í Ólaf Hauksson, sérstakan saksóknara, til að ræða við hann um málið. Nokkur mál sem tengjast Kaupþingi eru til rannsóknar hjá Ólafi, meðal annars Al-Thani málið sem snýst um meint sýndarviðskipti með hlutabréf í Kaupþingi skömmu fyrir bankahrunið 2008.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir