ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Jón Gnarr dregur framboð sitt til baka: Djók!

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:53 › 5. maí 2010
Jón Gnarr sló á létta strengi á oddvitafundi sem haldinn var í Háskólanum í Reykjavík í hádeginu.

Jón Gnarr sló á létta strengi á oddvitafundi sem haldinn var í Háskólanum í Reykjavík í hádeginu. Mynd DV

Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, sló í gegn á leiðtogafundi sem haldinn var í Háskólanum í Reykjavík í hádeginu vegna komandi borgarstjórnarkosninga.

Á fundinn voru mættir oddvitar þeirra flokka sem bjóða sig fram í komandi kosningum og héldu þeir allir stutt erindi. Í erindi sínu ræddi Jón Gnarr meðal annars um það hversu stjórnmálin væru orðin leiðinleg en hann hefur heldur betur hrist upp í borgarpólitíkinni að undanförnu.

Áður en Jón steig úr pontu sagði hann alvarlegur í bragði að hann hafi ákveðið að draga framboð sitt til baka. Þögn sló á fundargesti og segir heimildarmaður DV sem var á vettvangi að Hanna Birna Kristjánsdóttir og Dagur B. Eggertsson hafi litið hvort á annað og virtist þeim verða dálítið brugðið við tíðindin.

En eftir nokkrar sekúndur hrópaði Jón hátt og snallt yfir salinn: „Djók!“og uppskar hann mikil hlátrasköll fundargesta í kjölfarið. Engum sögum fer hinsvegar af viðbrögðum oddvita flokkanna en samkvæmt skoðanakönnunum er Besti flokkurinn þriðji stærsti flokkurinn, á eftir Sjálfstæðisflokknum og Samfylkingunni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?