ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Guðlaugur Þór: „Ég bara man það ekki“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:11 › 5. maí 2010
Í samtali við Mannlíf er Guðlaugur Þór sagður hafa sagst lítið muna um framboðsstyrki til sín.

Í samtali við Mannlíf er Guðlaugur Þór sagður hafa sagst lítið muna um framboðsstyrki til sín.

Á meðan Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist hafa fylgt ströngustu reglum gat hann engin svör gefið við spurningum Mannlífs árið 2008 um framboðsstyrki til þingmannsins. Þegar hann var spurður út í félagið sem hélt utan um styrkina, Guðlaugur á Alþingi, sagði hann það bara pappírsdót og sagðist lítið sem ekkert muna.

Þetta segir Sigurjón M. Egilsson, fyrrverandi ritstjóri Mannlífs, á bloggsvæði sínu. Þar birtir hann samtal sitt við Guðlaug Þór um framboðsstyrkina og félagið. Samkvæmt ritstjóranum fyrrverandi var samtal þeirra svona:

Guðlaugur: „Þetta er ekkert félag – þetta er bara svona pappírsdót.“
Blaðamaður: „En getur þú sagt hvort þetta félag hafi haldið utan um gögn vegna prófkjörsins 2006?“
Guðlaugur:„Ég bara man það ekki. Þetta er enginn félagsskapur.“
Blm: „Við erum að vinna grein vegna þessara félaga sem stofnuð eru í kringum prófkjör stjórnmálamanna, getur þú sagt hvort þetta félag hafi greitt einhver laun á tímabilinu eða gefið upp til skatts?“
Guðlaugur: „Nei, ég bara man það ekki, er ekki með þetta svona í höfðinu.“
Blm: „Manstu hver innkoman var hjá félagi tengdu þér fyrir prófkjörið 2006, hversu miklu var safnað?“
Guðlaugur: „Nei, ég man það ekki.“
Blm: „En hver útgjöldin voru?“
Guðlaugur: „Ég man það ekki.“
Blm: „Hver gæti vitað þetta?“
Guðlaugur: „Ég veit það ekki.“
Blm: „Er einhver sem veit þetta, var einhver sem sá um bókhald fyrir félagið, sem getur gefið okkur upplýsingar. Er hægt að fá upplýsingar hjá einhverjum öðrum um hvaða félag stóð að baki prófkjöri þínu 2006?“
Guðlaugur: „Nei, ég skal bara athuga þetta.“
Blm: „Við erum að vinna þetta um helgina, má ég hringja í þig seinna í dag eða á morgun?“
Guðlaugur: „Ég ætlaði nú bara að vera í fríi um helgina.“
Blm: „Eða á mánudagsmorgun?“
Guðlaugur „Nei, þá verð ég farinn til útlanda.”



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?