ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

Jón Gnarr: Man ekki eftir að hafa stutt Guðlaug Þór

Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is
11:55 › 4. maí 2010
Jón Gnarr segir leiðindin vera að byrja.

Jón Gnarr segir leiðindin vera að byrja.

Jón Gnarr formaður Besta Flokksins kannast ekki við að hafa verið stuðningsmaður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar alþingismanns. Á heimasíðu þingmannsins er þó birt mynd af Jóni Gnarr, þar sem hann er á lista stuðningsmanna Guðlaugs.

„Nei ég kannast ekkert við þetta, en tel það ekkert ólíklegt," segir Jón og bætir því við að hann hafi stutt fólk úr öllum flokkum nema Framsókn. „Ég studdi Gísla Martein, ekki sérstaklega vegna þess að ég var að styðja hann heldur vegna þess að ég var að berjast gegn því að Vilhljálmur Þ. Vilhjálmsson kæmist til valda í borginni minni."

Jón segist hafa stutt fólk í stjórnmálum vegna þess að hann hafi þekkt einhverja, eða þekkt einhvern sem þekkti viðkomandi. „Ég til dæmis kaus Karl Tómasson sem var trommuleikarinn í Gildrunni, hann var að bjóða sig fram fyrir Vinstri græna. Ég held ég hafi stutt allt nema Framsóknarflokkinn, það er bara prinsipp hjá mér að styðja ekkert sem hann gerir."

Þegar Jón er spurður hvort að hann styðji Guðlaug Þór svarar hann því neitandi. Annar segir hann nóg að gera í baráttunni. „Það er allt að gerast, leiðindin að byrja, þetta er að verða minna og minna skemmtilegt og meira og meira leiðinlegt og Helgi Seljan og DV farið að hringja í mig."



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.