ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Sóley: Óöryggi að vita ekki fyrir hvað Besti flokkurinn stendur

14:44 › 31. maí 2010
Oddvitarnir. Baldvin Jónsson, Jón Gnarr, Ólafur F. Magnússon, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Sóley  Tómasdóttir, Helga Þórðardóttir, Dagur B. Eggertsson og Einar Skúlason.

Oddvitarnir. Baldvin Jónsson, Jón Gnarr, Ólafur F. Magnússon, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Sóley Tómasdóttir, Helga Þórðardóttir, Dagur B. Eggertsson og Einar Skúlason.

  • Sóley Tómasdóttir er hugsi yfir innanflokksátökum í VG.

    Sóley Tómasdóttir er hugsi yfir innanflokksátökum í VG.

Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi Vinstri Grænna verður ekki í meirihluta Besta flokksins og Samfylkingarinnar. „Besti flokkurinn þarf ekki tíu manna meirihluta og vill ekki vera í þriggja flokka samstarfi. Þau segjast hafa litla reynslu af pólitík og vilja ekki flækja málin,“ segir Sóley í samtali við DV.

Sóley segist skilja afstöðu Besta flokksins. „Ég skil það vel. Ég heyrði samt í Heiðu Kristínu [Helgadóttur, aðstoðarmanni Jóns Gnarr] og lýsti áhuga mínum. Við erum öll búin að tala saman.“

Ræddi við sjálfstæðismenn
Sóley ræddi ekki aðeins við Besta flokkinn heldur einnig Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna. „Þetta er allt fyrir opnum tjöldum. Við vitum öll að Samfylkingin og Besti flokkurinn vilja vera í viðræðum og reyna að ná saman. Það er mjög skiljanlegt. Svo á eftir að koma í ljós hver helstu áherslumál Besta flokksins eru. Þá fyrst get ég gert það upp við mig hvort þetta er eittvað sem ég hefði getað tekið þátt í og hvort ég sé svekkt yfir því að vera ekki partur af þeim meirihluta. Það veldur náttúrulega ákveðnu óöryggi að vita ekki fyrir hvað stærsti flokkurinn stendur, hver þeirra helstu viðfangsefni eru og hvað þau setja á oddinn þegar á reynir.“

Liggur uppi í rúmi
Þegar blaðamaður náði tali af Sóley lá hún uppi í rúmi, alveg búin á því eftir lítinn nætursvefn síðustu daga og vikur. Þá hafa innanflokksátök tekið á en Sóley segist vera „hugsi yfir þessum innanflokksátökum sem hafa vissulega litað kosningabaráttuna. Mér finnst fólk helst til djarft í yfirlýsingum þegar það túlkar niðurstöður kosninganna. Ég lít í eigin barm og tel fulla ástæðu til að skoða okkar mál hjá flokknum. Mér þætti eðlilegt að aðrir frambjóðendur gerðu það líka.“

Myndi gera þetta aftur „anytime“
Sóley ætlar að taka daginn til þess að hvílast og safna orku og halda svo ótrauð áfram. „Svo mun ég reyna að halda stefnu Vinstri grænna á lofti eins og ég mögulega get.“ Aðspurð að því hvort henni ói við því að vera eini fulltrúi VG í borgarstjórn segir hún: „Það hlýtur að vera erfiðara. Fyrst og fremst vegna þess að þá mun VG eiga færri málsvara. En ég mun standa mig eins vel og ég get. Núna hlakka ég bara til þess að hitta fjölskylduna og eiga tíma með henni. Ég sé fram á að fara að eiga helgarfrí og geta stundum verið heima á kvöldin og svona. Það verður ljúft. En þrátt fyrir allt sem á undan er gengið er baráttan algjörlega þess virði og ég myndi gera þetta allt aftur, anytime.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?