ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

„Auðveldar ekki kattasmölunina“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:20 › 31. maí 2010
Birgir segir niðurstöður kosninganna þrýsta á um allsherjar endurskoðun stjórnmálaflokkanna.

Birgir segir niðurstöður kosninganna þrýsta á um allsherjar endurskoðun stjórnmálaflokkanna.

„Efasemdafólkið í baklandi ríkisstjórnarinnar hefur fengið vatn á sína myllu og þetta auðveldar ekki kattasmölun þeirra Steingríms og Jóhönnu,“ segir Birgir Guðmundsson, stjórnmálafræðingur við Háskólann á Akureyri, um niðurstöður nýafstaðinna sveitarstjórnakosninga.

Birgir segir niðurstöðurnar til marks um kröfu almennings um að breytingar verði gerðar á íslensku stjórnmálalífi. Þrátt fyrir það segist Birgir ekki taka undir þau sjónarmið að fjórflokkurinn sé í andarslitrunum eins og leitt hefur verið líkum að í kjölfar sveitarstjórnakosninganna. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í kosningasjónvarpi Ríkisútvarpsins að niðurstöðurnar boðuðu upphafið að endalokum fjórflokkakerfisins.

„Flokkakerfið og fjórflokkurinn er eins og olíuskip. Hann er svolítið seinn að snúa sér en það mun gerast skipulagslega, forystulega og stefnulega þar sem starfsaðferðir þeirra verða endurskoðaðar til að mæta kröfum almennings. Fjórflokkurinn er ekki dauður en hann mun ganga í endurnýjun lífdaga,“ segir Birgir.

rhb@dv.is



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?