Guðmundur telur að einhversstaðar sé pottur brotinn hjá Framsókn þegar endurnýjaður flokkurinn hafi ekki einu sinni verið valkostur hjá fólki í kosningunum sem snúist hafi um einmitt það.
„Það er áhyggjuefni að í þessum kosningum, sem snérust að miklu leyti um hvernig pólitík fólk vill sjá stundaða á Íslandi, þá var endurnýjaður Framsóknarflokkur hreinlega ekki valkostur hjá fólki,“ segir Guðmundur Steingrímsson, þingmaður flokksins, sem kom afar illa út úr kosningunum á höfuðborgarsvæðinu.
„Endurnýjaður flokkur í kosningabaráttu sem þessari hefði fyrir löngu getað verið búinn að sannfæra kjósendur um að hann ætlaði að stunda þá pólitík sem þeir eru að kalla eftir. Ef við kunnum ekki að taka þessum skilaboðum þá er illa fyrir okkur farið,“ segir Guðmundur harðorður í garð sinna manna og síns flokks.
Afhroð setja pressu á flokksforystuna
Hann segir úrslit kosninganna á höfuðborgarsvæðinu setja augljóslega pressu á flokksforystuna um að hugsa málið. „Við getum ekki litið framhjá þessum skilaboðum. Ég er að reyna að gera mitt með að greina þau og sjá hvað við getum gert betur. Við verðum að taka þetta alvarlega. “
Guðmundur kveðst sjálfur hafa gagnrýnt það að flokkurinn hafi verið of herskrár og ósanngjarn í sínum málflutningi og of reiðubúinn í flokkspólitískt karp. „Sem er nákvæmlega það sem fólk vill ekki og í raun það sem ég tel sjálfur að pólitík eigi ekki að snúast um.“
Guðmundur bendir á að víða um land hafi kosningarnar ekki snúist um þessa spurningu. Þar hafi þær snúist með hefðbundnum hætti um sveitarstjórnarmál. Þar hafi flokkurinn víða náð góðum árangri. Þar hafi sterkir einstaklingar úr röðum Framsóknarflokksins unnið stórsigur.
Aðspurður kveðst Guðmundur sjálfur ekkert vera að hugsa um að gera atlögu að formannsstóli flokksins. Honum þyki kosningabaráttan og úrslitin í Reykjavík ótrúlega merkileg og gefi tilefni til innri skoðunar.
Er sami rassinn undir okkur öllum?„Og ég er bara að hugsa um hvernig ég, sem einstaklingur í stjórnmálum, hvernig á maður að taka þessu? Er sami rassinn undir okkur öllum? Erum við öll bara drullusokkar sem erum í pólitík? Mig langar að sjá heilbrigðari pólitík en verið hefur á undanförnum misserum og árum á Íslandi. Ég vil sjá flokkana núna hugsa hreinlega grundvallarspurningar eins og – Hvað erum við? Flokkarnir eiga að vera fyrir fólkið í landinu fyrir kjósendur til að ráða ráðum sínum lýðræðislega og út úr því á að koma eitthvað gott. Þær eiga ekki að vera bara þessar valdastofnanir,“ segir framsóknarþingmaðurinn Guðmundur á heimspekilegum nótum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
