Mjótt var á munum í Hvalfjarðarsveit í gær svo aukastaf þurfti til að skera úr um hvor listinn fengi fulltrúa. Mynd tengist efni fréttar ekki
E-listi, Eining Hvalfjarðarsveit, fær þrjá fulltrúa í sveitarstjórn á kostnað H-lista (Heild) eftir að kjörstjórn Hvalfjarðarsveitar þurfti að kveða upp úrskurð á grundvelli 85. greinar kosningalaga eftir að í ljós kom að fulltrúar sitthvors lista voru jafnir þegar útkomutölur voru reiknaðar í heilum tölum.
Grípa þurfti til þess að reikna útkomutölur með einum aukastaf urðu niðurstöður þær að E-listinn fékk 3. mann sinn inn en H-listinn missti 2. mann sinn út.
L-listi Hvalfjarðarlistans fékk sömuleiðis þrjá menn kjörna í kosningunum í gær.
Fram kemur á vef Skessuhornsins að formaður kjörstjórnar telji líklegt að málið fari í kærumeðferð til kjörnefndar sem sýslumaðurinn í Borgarnesi skipar.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
