ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Létu barnið svelta á meðan þau spiluðu tölvuleik

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:15 › 30. maí 2010
Netfíkn er ógnarstórt vandamál í Suður-Kóreu. Allt að 2 milljónir af 49 milljónum íbúa eiga við netfíkn að stríða

Netfíkn er ógnarstórt vandamál í Suður-Kóreu. Allt að 2 milljónir af 49 milljónum íbúa eiga við netfíkn að stríða

Suður-kóreiskt par hefur verið dæmt í tveggja ára fangelsi fyrir að vanrækja dóttur sína á meðan þau spiluðu tölvuleik. Leikinn spiluðu þau að meðaltali 10 tíma á dag á netkaffihúsum, en í honum léku þau foreldra sýndarbarns. Á meðan þau önnuðust sýndarbarnið svalt dóttir þeirra heima.

Krufning leiddi í ljós að dóttir þeirra dó af vannæringu, og hafði oft verið barin fyrir að gráta. Þau komu að dóttur sinni látinni eftir að hafa verið næturlangt á netkaffihúsi. Konan þarf ekki að sitja dóminn sinn vegna þess að hún er ólétt.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.