ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Jóhanna: Upphafið að endalokum fjórflokksins

09:39 › 30. maí 2010
Jóhanna Sigurðardóttir skynjar breytingar á hinu pólitíska landslagi Íslands.

Jóhanna Sigurðardóttir skynjar breytingar á hinu pólitíska landslagi Íslands.

„Mér segist sá hugur að þetta sér upphafið að endalokum fjórflokkakerfisins,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, í samtali við RÚV. Hún segir úrslit sveitarstjórnarkosninganna áfall og skell fyrir allan fjórflokkinn.

Forsætisráðherra telur sömuleiðis að úrslitin séu kaflaskil í íslenskum stjórnmálum sem munu hafa áhrif á stjórnmálaumræðu hér á landi og marka endalok fjórflokksins.

„Ég held að við séum að uppflifa mikil kaflaskil í íslenskri pólitík sem mun hafa mikil áhrif á hið pólitíska landslag inn í framtíðina og mér segir sá hugur að þetta sé upphafið að endalokum fjórflokksins,“ segir hún á RÚV.

Hún sagði Samfylkinguna verða að skoða stöðu sína í ljósi þessara niðurstaðna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?