ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Hin hliðin á Jóni Gnarr: Vill láta gott af sér leiða

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:19 › 30. maí 2010
Eins og Obama. Jón Gnarr hefur prófað það sama og Obama, oftast tekinn í góðu af lögreglunni og aldrei verið nakinn í óbyggðum.

Eins og Obama. Jón Gnarr hefur prófað það sama og Obama, oftast tekinn í góðu af lögreglunni og aldrei verið nakinn í óbyggðum. Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson

Oddvitar framboðanna sem buðu fram í Reykjavík og kosið var um í gær opna sig í helgarblaði DV að þessu sinni. Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, er klár sigurvegari borgarstjórnarkosninganna. DV.is birtir yfirheyrsluna í heild sinni hér.

1. Hvað varst þú að gera síðasta laugardagskvöld? Hugsa um Besta flokkinn og hvað væri gaman að vera í honum.
2. Hver var þín fyrsta hugsun í morgun? Hvað allir væru að tala vel um Besta flokkinn.
3. Hvað lýsir þér best? Besti flokkurinn.
4. Hver er fyrsta minning þín úr æsku? Af mömmu og vinkonum hennar að laga á sér hárið og reykja.
5. Hvar, hvenær og hvernig var fyrsti kossinn? Núpur í Dýrafirði 1981. Hann var fínn.

6. Hefur þú einhvern tímann fengið sæluhroll? Ef já, hvenær og af hverju? Sæluhrollar eru hluti af lífi mínu. Ég fæ raðsæluhrolla þessa dagana.
7. Hvað er það villtasta sem þú hefur gert? Þegar ég fór í svett.
8. Hefur þú verið nakinn í óbyggðum? Nei.
9. Hefur þú prófað fíkniefni önnur en áfengi? Reykt hass? Ég hef prófað allt sem Obama hefur prófað.*
10. Hefur þú lent í klóm ræningja? Nei, sem betur fer ekki.

11. Hefur þú verið tekinn af lögreglunni? Já, en yfirleitt bara í góðu.
12. Ef þú ættir heima í öðrum heimi, hvar væri það? Í Kardimommubæ.
13. Hvað er það sem þú myndir helst vilja prófa? Sjá? Gera? Gera Reykjavík fallega og skemmtilega heimsborg.
14. Hvað er besta stundin sem þú hefur upplifað? Þegar ég kynntist konunni minni. Sú stund varir enn.
15. Hvenær og hvern kysstir þú síðast? Son minn þegar ég kvaddi hann í leikskólanum.

16. Hefur þú gleymt afmælisdegi einhvers sem skiptir þig máli? Já.
17. Hvenær gleymdir þú barninu þínu síðast? Ég man það ekki.
18. Hver er einmanalegasta stundin sem þú hefur upplifað? Ég er ekki til í að deila því.
19. Hver er albesta máltíð sem þú hefur fengið? Mér finnst allur matur ágætur.
20. Hefur þú svikið einhvern? Ekki viljandi. Það stríðir gegn eðli mínu.

21. Biðst þú afsökunar á mistökum þínum? Ef já, hvernig? Já, en ég geri aldrei mistök, en þegar ég geri þau þá er ég fyrstur manna til að biðjast afsökunar.
22. Hvað er það fyndnasta sem þú hefur séð eða heyrt? Pétur Jóhann Sigfússon.
23. Hvað er það síðasta sem þú gerir á kvöldin áður en þú ferð að sofa? Loka augunum.
24. Hvernig heilsar þú fjölskyldunni þegar þið vaknið á morgnanna? Með gleði.
25. Hvað yrði þitt fyrsta verk þitt í hlutverki hins kynsins ef það myndi breytast? Ganga í Besta Flokkinn.

26. Hversu mörg kosningaloforð telur þú að þú getir staðið við? Það fer eftir kosningu.
27. Hvað er það versta sem þér hefur tekist að fyrirgefa? Mannlegir breyskleikar.
28. Hvert er eftirminnilegasta ferðalagið sem þú hefur farið í? Asoraeyjar 2001.
29. Hver er stærsta stundin í þínu lífi? Dagurinn í dag.
30. Hver er þinn æðsti draumur? Að láta eitthvað verulega gott og skemmtilegt af mér leiða.

* Hass og kókaín

Lesa má svör hinna oddvitanna í Reykjavík í skemmtilegri yfirheyrslu DV í blaðinu í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?