ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Bjarni, Sigmundur og Steingrímur allir sigri hrósandi

Baldur Guðmundsson baldur@dv.is
01:51 › 30. maí 2010

Bjarni Benediktsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Steingrímur J. Sigfússon, lesa allir það úr úr sveitastjórnarkosningunum að niðurstaðan sé betri hjá þeirra flokkum en öðrum.Þetta kom fram í máli þeirra í sjónvarpssal nú rétt í þessu. Jóhanna Sigurðardóttir skar sig úr og viðurkenndi að Samfylkingin hlyti að skoða vel þá stöðu sem upp væri komin. Allir flokkar yrðu að taka skilaboðin alvarlega. Hún sagði enn fremur að kosningarnar væru upphafið að endalokum fjórflokksins.

Sigmundur sagði að flokkurinn hefði víða um land unnið stórsigra. Hann var tregur til að ræða úrslitin í Reykjavík en benti á að flokkurinn væri víða að fá bestu kosningu í áratugi. Hann sagði ósanngjarnt að talað sé um fjórflokkinn sem eina heild. Enginn flokkur hefði gengið í gegn um jafn mikla endurnýjun og Framsóknarflokkurinn. „Á heildina litið er framsókn að njóta þess að hafa farið í endurnýjum,“ sagði hann.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins sagði að tölurnar nú væru miklu betri en í síðustu kosningum. Flokkurinn væri í mikilli sókn. Hann segir að úrslitin í Reykjavík séu ekki áfall fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hans stóra áfall hefði orðið í þingskosningunum 2009. „Það eru vinstri
flokkarnir sem eru að stórtapa í þessum kosningum. Vinstri sveiflan er horfin vegna þess að vinstri flokkarnir eru ekkert að gera,“ sagði hann og bætti við að Sjálfstæðisflokkurinn væri á nokkri leið. Hann benti á að flokkurinn hefði hlotið hreinan meirihluta víða. „Vinstri flokkarnir eru í
sárum eftir þessar kosningar,“ sagði hann.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.