Menn eru að reyna að setja pressu á Besta flokkinn um að mynda meirihluta en þeir ætla að leggjast undir feld.
Frambjóðendur og flokksmenn Besta listans munu hittast á fundi síðar í dag og ræða framtíð borgarstjórnarmála í kjölfar ótrúlegrar kosningaútkomu sinnar í gær. Þær upplýsingar fást frá úr röðum flokksins að fundarstað og fundarefni verði haldið leyndu þar sem flokkurinn vilji ekki láta setja á sig óþarfa þrýsting.
Gaukur Úlfarsson, fjölmiðlafulltrúi Besta flokksins, segir að þar á bæ finni menn fyrir því að verið sé að reyna að setja þrýsting á flokkinn um myndun meirihluta. Menn muni hins vegar gefa sér tíma til að fara yfir málin í sameiningu. Borgarstjórn yrði starfandi í 15 daga eftir kosningar þannig að ekkert liggi á, nokkuð sem Jón Gnarr hefur ítrekað lýst yfir í samtali við fjölmiðla.
Aðspurður um vangaveltur þess efnis að Hanna Birna Kristjánsdóttir og Dagur B. Eggertsson gætu ákveðið að sniðganga Besta flokkinn og myndað meirihluta án hans segir Gaukur það augljóst mál að allar slíkar aðgerðir myndu vera „pólitísk sjálfseyðing.“ Besti flokkurinn væri í bílstjórasætinu.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
