ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Akureyri: Kemur ekki á óvart

Baldur Guðmundsson baldur@dv.is
00:07 › 30. maí 2010
Birgir Guðmundsson stjórnmálafræðingur.

Birgir Guðmundsson stjórnmálafræðingur.

„Sveiflan byrjaði í síðustu viku. Þetta er svona í anda þess sem síðustu skoðanakannanir sýndu. Það blasti við að L-listinn væri með fimm menn inni og ættu líka næsta mann inn,“ segir Birgir Guðmundsson stjórnmálafræðingur um fyrstu tölur frá Akureyri.

Samkvæmt þeim er L-listi fólksins með hreinan meirihluta á Akureyri. Önnur framboð ná inn einum manni. Allir aðrir listar ná inn einum manni. Fylgistap Sjálfstæðisflokksins er mest; flokkurinn tapar þremur mönnum af fjórum. Birgir segir niðurstöðurnar ekki koma sér á óvart.

Birgir segir að fylgisaukning L-listans hafi ef til vill virkað hvetjandi á óánægða kjósendur sem hafi leitað að farvegi fyrir atkvæði sitt. „Það staðfestist svo með afgerandi hætti í vikunni og nú í fyrstu tölum,“ segir hann.

Birgir segir margt spila inn í þessar miklu breytingar. Bæði einstök stefnumál flokkanna; skipulagsmál og atvinnumál. Menn séu að sjá miklar breytingar víða um land. Þrennt ýmislegt til. Menn séu í fyrsta lagi að refsa ríkisstjórninni og pólitíkinni almennt. Minni sveitafélög skeri sig úr vegna staðbundna aðstæðna og einstakra mála sem skipti íbúa þeirra máli. „Tilteknum einstaklingum innan fjórflokkanna hefur tekist að halda sjó, líklega út af praktískum málum í þeirra heimabyggðum,“segir hann og bætir við að í stærri sveitarfélögum snúist kosningarnar oft meira um hugsjónir en einstök mál. Þar sé sveiflan meiri.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?