Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins í Reykjavík, sagði gjaldþrot Tvíhöfða ehf. fyrir nokkrum árum vera félaga hans í gríntvíeykinu Tvíhöfða Sigurjóni Kjartanssyni að kenna. Þetta sagði Jón í viðtali í Kastljósþætti kvöldsins. Spurður um stærð gjaldþrotsins sagðist Jón engu geta svarað til um það en það væri allt Sigurjóni að kenna. Félagið varð gjaldþrota árið 2003 samkvæmt heimildum DV. Annað félag í eigu Jóns Gnarr, Jón Gnarr ehf., varð gjaldþrota árið 2007.
Sigurjón mætti í Silfur Egils sem talsmaður Besta flokksins fyrir skemmstu. Kastljóssmaðurinn Helgi Seljan spurði hvort hann væri ekki þar með forsvarsmaður Besta flokksins en Jón gerði lítið úr því.
Jón var spurður út í ýmis stefnumál Besta flokksins sem hafa notið athygli. Jón sagðist ekki geta lofað því að hann yrði leiðinlegur borgarstjórnafulltrúi eftir að hafa setið í borgarstjórn í dágóðan tíma en ef svo yrði sagðist hann vona að einhver myndi pikka í sig og benda sér á það.
Spurður út í hvort að Jón teldi það vera siðferðislega rétt af Besta flokknum að halda þeirri hugmynd inn á stefnuskrá sinni um ættleiðingu róna í Reykjavík sagði Jón það vera ágætis hugmynd en sagði að hún yrði aldrei framkvæmd nema með leyfi borgarbúa.
Komið var inn á að flest allar hugmyndir Besta flokksins krefðust útgjalda hjá borginni, fyrir utan tollhlið, á tímum þegar borgarstjórnarfulltrúar þyrftu að vera góðir í að draga úr útgjöldum. Jón sagði hugmyndir Besta flokksins um að fá ísbjörn og lundabjarg í húsdýragarðinn ekki vera kostnaðarsamar því þær hugmyndir myndu draga að svo marga ferðamenn og borga sig upp á skömmum tíma.





Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“