Breska dagblaðið Daily star birtir íslenska knattspyrnumanninn Eið Smára Guðjohnsen á forsíðu blaðsins sem kemur út á morgun. Þar er hann sakaður um að heilsa með Nasistakveðju. Í samtali við Pressuna segir Eggert Skúlason, talsmaður Eiðs Smára á Íslandi, Daily star fara með rangt mál en Eiður Smári hafi verið að segja brandara um Mexíkó og sé málið komið í hendur lögfræðinga.
Á forsíðunni er því haldið fram að þessi mynd eigi að gera það að verkum að Eiður Smári muni ekki langa framtíð hjá enska úrvalsdeildarliðinu Tottenham Hotspur vegna hneykslisins sem þessi mynd á að valda.
Eiður Smári var einnig í kastljósi breskra slúðurblaða fyrr í vetur þegar blöðin The Sun og News Of the World héldu því bæði fram að Eiður Smári hefði átt í sambandi við frönsku fyrirsætuna Vanessu Perroncell er hann lék með Lundúnaliðinu Chelsea.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
