Sóley Tómasdóttir oddviti VG og Gísli Marteinn Baldursson sem er á fimmta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hafa hlotið margar útstrikanir á kjörseðlum, samkvæmt heimildum DV.
Heimildirnar herma að nokkuð mikið sé um útstrikanir en þessi nöfn beri hæst. Kjörseðlar með útstrikinum eru teknir frá og taldir síðast. Það getur þýtt að nokkrar breytingar geti orðið á fylginu þegar líður á nóttina.
Birgir Guðmundsson stjórnmálafræðingur segir að vitað hafi verið að Gísli Marteinn og Sóley væru umdeild. „Gísli Marteinn fyrir sín tengsl við gömlu stjórnmálin og styrkina. Sóley er líka umdeild vegna þess að hún er ögrandi femínisti. Hún hefur sett fram mjög ögrandi fullyrðingar sem hafa verið umdeildar,“ segir Birgir.
Hann segist þó ekki reikna með að þetta hafi mikil áhrif á röðun frambjóðendanna. Mikið þurfi að gerast til þess. Hann segir þó að þetta geti þýtt að VG og Sjálfstæðisflokkurinn fái betri niðurstöðu úr síðustu tölum en nú bendir til.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
