„Ég er náttúrulega bara mjög þakklátur og finnst bara rosalega gaman að sjá hvað mikið af fólki þráir bjarta og skemmtilega framtíð með Besta flokknum,“ segir Jón Gnarr oddviti Besta flokksins í samtali við DV.is. Hann segir fyrstu tölur gefa til kynna að flokkurinn verði stærsti flokkurinn í borginni á næsta kjörtímabili.
„Þetta er náttúrulega heimsviðburður og á vonandi eftir að gerast víðar. Að Besti flokkurinn verði stofnaður víða um heim,“ segir Jón. Hann telur að gott gengi Besta flokksins megi rekja til þess að honum hafi tekist að búa eitthvað til sem ekki var til áður í íslenskum stjórnmálunum.
Jón segist vera virkilega þakklátur öllum þeim sem kusu flokkinn. Hann segir að ef þetta verði niðurstaðan verði Reykvíkingar áþreifanlega varir við meiri gleði og fegurð á götum Reykjavíkurborgar á næstu dögum.
Jón segist vera ögn ringlaður eftir mikla vinnu undanfarna daga en telur að sitt fyrsta verk verði að taka graskerið eins og hann kallar það af Lækjartorgi og flytja styttuna af útilegumanninum eftir myndhöggvarann Einar Jónsson þangað í staðinn. „Þannig að fólkið í stjórnarráðinu hafi eitthvað fallegt að horfa á,“ segir Jón sem staddur er á kosningavöku Besta flokksins sem haldinn er í Iðusölum og verður líklegast fram eftir nótt.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
