ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Gefur lítið fyrir yfirlýsingar Hönnu Birnu

Baldur Guðmundsson baldur@dv.is
22:52 › 29. maí 2010
  • Birgir Guðmundsson

    Birgir Guðmundsson

Það er kannski til marks um ástandið í pólitíkinni að Hanna Birna skuli anda léttar og telja það til stórsigurs að tapa „bara“ tveimur borgarfulltrúum,“ segir Birgir Guðmundsson stjórnmálafræðingur við Háskólann á Akureyri.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, lýsti því yfir eftir að fyrstu tölur voru birtar að Sjálfstæðisflokkurinn væri í stórsókn í Reykjavík. Vísaði hún þar í fylgi í Alþingiskosningum í fyrra.

Birgir gefur lítið fyrir yfirlýsingu Hönnu Birnu bendir á að Sjálfstæðisflokkurinn hafi iðulega fengið mun meira fylgi í sveitastjórnarkosningum en í Alþingiskosningum.

Spurður um ótrúlegt gengi Besta flokksins segir Birgir að í það hafi stefnt. Fylgið komi því ekki á óvart. „Þetta staðfestir bara að það er djúpstæð óánægja í gangi í Reykjavík og víðar. Gömlu flokkarnir þurfa að velta alvarlega fyrir sér hver staða þeirra er og hvers vegna flokkakerfinu hefur ekki tekist að finna pólitískar úrlausnir og mæta þeim kröfum sem til þeirra eru gerðar,“ segir Birgir.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?