ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Breskur listamaður sakar Erró um þjófnað

07:43 › 25. maí 2010
Erró harðlega gagnrýndur af Brian Bolland.

Erró harðlega gagnrýndur af Brian Bolland.

  • Bolland með upphaflegu teikninguna af Tank Girl.

    Bolland með upphaflegu teikninguna af Tank Girl.

  • Bolland lét eiginkonu sína taka mynd af sér með plakatinu í Pompidou.

    Bolland lét eiginkonu sína taka mynd af sér með plakatinu í Pompidou.

Myndlistamaðurinn Erró hefur ekki verið að eignast marga vini meðal kollega sinna undanfarið í kjölfar sýningar á verkum hans í Pomidou-safninu í París nýlega. Einn breskur listamaður, sem sakar Erró um þjófnað á verki sínu, hefur skrifað honum opið og harðort bréf í tilefni þess.

Stíll Errós er sá að taka misfrægar teiknimyndafígúrur, endurteikna þær, blanda þeim saman og birta sem sína eigin klippimyndalist. Á listasíðunni BleedingCool.com kemur fram að nokkrir listamenn séu ósáttir með þetta. Þar á meðal teiknarinn Chris Weston. En breski myndlistamaðurinn og teiknimyndasöguteiknarinn Brian Bolland gengur lengst í óánægju sinni og skrifar Erró opið bréf sem birtist á síðunni vegna notkunar íslenska listamannsins á Tank Girl: The Odyssey mynd sinni.

Bolland segir að hann hafi heimsótt Pompidou-safnið í París til að sjá með eigin augum túlkun Errós á Tank Girl.

„Léleg endurgerð á mínu verki“
„Kæri Erró (eða Guðmundur ef þú kýst það frekar). Nafn mitt kannast þú örugglega lítið við nema að þú munir eftir því að hafa þurrkað það út af teikningu minni frá 1995 sem kallast Tank Girl Odyssey,“ skrifar Bolland í upphafi bréfsins.

Bolland kveðst fyrst hafa séð verk Errós á sýningu í Reykjavík á sínum tíma og þótt mikið til verka hans koma. Sérstaklega hafi honum þótt gaman að spotta þá listamenn sem hann hefði stolið verkum sínum frá.

„Ég var staddur í Pompidou-safninu í París nýlega og gekk inn í sal þar sem verk þín voru til sýningar. Og á sölubás einum sá ég stórt plakat af teikningu MINNI af Tank Girl, áritaða af þér og til sölu á 600 evrur. Þarna var um að ræða lélega endurgerð á mínu verki,“ skrifar Bolland harðorður.

Bolland gagnrýnir síðan Erró fyrir að hafa tekið hvert einasta smáatriði myndarinnar, sem Bolland teiknaði og var forsíða teiknimyndasögunnar um Tank Girl í Bretlandi, og stolið því. Eini munurinn er að Erró hafði skipt út bakgrunninum.

Hvergi getið heimilda
Bolland kveðst í bréfi sínu hafa lesið svar Errós við gagnrýni Chris Westons þar sem Erró segir að hann líti á sig sem nokkurskonar dálkahöfund eða blaðamann í list. „Blaðamenn vitna alltaf í heimildarmenn sína til að veita ítarlegri skilning á viðfangsefninu. Fréttir þeirra, eins og verk þín, samanstanda nær eingöngu af tilvitnunum. Munurinn á blaðamönnum og þér, Erró, er að þeir birta nöfn þeirra sem þeir eru að vitna í og heiðarlegir blaðamenn myndu ekki mistúlka heimildarmenn sína og taka orð þeirra úr samhengi. Ef þeir gerðu það myndu þeir viljandi vera að ófrægja þá. Í Tank Girl-myndinni „vitnar“ þú í heilt verk eftir mig. Og á vissum tímapunkti þurrkar þú út nafn mitt og með því heldur þú því fram að hún sé ekki eftir nokkurn listamann. Þar með er myndin ekki list lengur heldur bara hráefni fyrir þig í klippimyndastíl þínum.“

Hreinn „ritstuldur“
Bolland segir teiknimyndasöguteiknara vera vana því að fara illa út úr viðskiptum sínum við útgefendur í gamla daga, en annað mál sé að fá kjaftshögg frá öðrum listamanni. Honum hafi sviðið að sjá mynd eftir sig, endurteiknaða nákvæmlega eins og síðan til sölu á 600 evrur í listasafni.

Bolland segist hafa verið aðdáendi eldri verka Errós þar sem hann hafi búið til stórar og íburðarmiklar klippimyndir úr öllum áttum en Tank Girl-myndin sé síður en svo í þeim flokki. Þar sé mynd hans ráðandi í verkinu og í raun eini sölupunkturinn í því.

„Þú fórst svo langt út fyrir „sanngjarna notkun“ á annarra manna verkum með þessu að þú fórst yfir í ritstuld,“ segir Bolland í niðurlagi bréfsins.
Hvað verðmiðann varðar segir Bolland að það eina sanngjarna í stöðunni sé ef Erró hætti að selja plaköt af myndinni og bjóði sér ágóðann af seldum myndum.

Myndin tekin úr sölu
Umboðsmaður Errós virðist hafa brugðist við bréfinu ef marka má vefsíðuna en í svari hans við því segir:

„Í kjölfar bréfsins höfum við ákveðið að hætta að selja þessa útgáfu af “Tank”. Við höfum búið til 20 eintök, við höfum selt þrjú, við höfum gefið Erró 5 eintök. Við munum gefa honum 12 af þeim eintökum sem eftir eru.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?