Íslandsvinurinn Max Keiser lofar þeim aðila sem finnur Sigurð Einarsson, fyrrverandi bankastjóra Kaupþings, sem eftirlýstur er af Interpol, 28 grömmum af hreinu gulli. Þetta kemur fram í sjónvarpsþætti hans Keiser Report sem birtur er á fréttamiðlinum RT.
Í sjónvarpsþættinum er birt mynd af Sigurði. Áhorfendum er ráðlagt að hafa samband við næstu lögreglustöð, telji þeir sig hafa séð Sigurð, sem og að hafa samband við Keiser, sem lofar hreinu gulli fyrir fundinn. Keiser og viðmælandi hans í þættinum gefa áhorfendum leiðbeiningar um hvernig eigi að bera sig að viti maður hvar Sigurður heldur sig.
Bætt við klukkan 10:23
Gullverð hefur hækkað undanfarið en í lok síðasta árs voru 28 grömm metin á um 1215 dollara sem gerir 160.000 krónur. Max Keiser kom til Íslands fyrir fall bankanna og gerði heimildarmynd um hina gríðarlegu skuldasöfnun þeirra. Hann var einnig í viðtali í Silfri Egils hjá Agli helgasyni 30. janúar síðsastliðinn.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
