Sekt flokksins á einum manni. Björgvin G. Sigurðsson er eini Samfylkingarmaðurinn sem vikið hefur af vettvangi stjórnmálanna.
Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður og fyrrverandi ráðherra, telur sig svikinn af forystu Samfylkingarinnar og samkvæmt heimildum DV íhugar hann alvarlega stöðu sína innan flokksins.
Björgvin er eini kjörni fulltrúinn sem stigið hefur út af vettvangi stjórnmálanna af hálfu Samfylkingarinnar eftir að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis kom út um miðjan apríl síðastliðinn.
DV er kunnugt um að innan Samfylkingarinnar hafi verið lagt að Björgvin að taka sér leyfi frá þingstörfum enda sé hann eini kjörni þingmaðurinn sem sakaður er um vanrækslu í aðdraganda bankahrunsins, þá sem viðskiptaráðherra. Þá þyki flokknum erfitt að leita til hans í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna eða leggja honum lið með einhverjum hætti.
Stuðningsmenn Björgvins telja ómaklegt að hann sé einn látinn bera sekt flokksins og ábyrgð vegna bankahrunsins. Björgvin er nú tekjulaus með 8 manna fjölskyldu og íhugar sinn gang og stöðu sína innan flokksins. Heimildir DV herma að Björgvin hafi lýst þessari erfiðu stöðu sinni sem svo við samflokksmenn sína að hann liggi „í blóði sínu“.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
