Orkan á Reykjanesi er komin í eigu útlendinga sem munu að hluta ráða orkuverðinu í landinu. Ögmundur Jónasson er ævareiður.
,,Á þessu prófi hefur ríkisstjórnin og meirihlutinn fengið falleinkunn. Brýnasta verkefni Íslendinga er að standa vörð um auðlindir sínar. Menn góna aðgerðarlausir á þetta gerast," segir Ögmundur Jónasson, alþingismaður VG, um söluna á HS Orku til kandadíska fyrirtækisins Magma Energy sem þar með hefur eignast yfir 98 prósent í hinu gróna fyrirtæki Hitaveitu Suðurnesja. Ögmundur er ævareiður ríkisstjórninni og stjórnarmeirihlutanum fyrir að hafa leyft að það gerðist að þriðja stærsta orkufyrirtæki Íslands hafi farið í eigu útlendinga.
,,Við erum hér með í klóm þessarra aðila. Það var ekki Hjálpræðisherinn sem keypti. Þetta er erlent gróðafyrirtæki og arðurinn streymir út úr landinu. Til þess er leikurinn gerður," segir Ögmundur.
Hann segir að Þingflokksfundur verði haldinn hjá Vinstri grænum í dag til að ræða hvað sé til ráða. Og Ögmundur fordæmir framgöngu eigenda Geysis Green Energy sem seldi Magma sinn hlut.
,,Þetta fólk er gersneytt allri ábyrgðarkennd og samstöðu sínu samfélagi," segir hann.
Ögmundur er spurður hvort þetta breyti afstöðu hans til ríkisstjórnarinnar.
,,Ég mun herðast í þeirri kröfu á hendur ríkisstjórn og meirihluta að þeir standi í fæturnar gagnvart þessum öflum, sem eru að stela landinu okkar," segir hann.
Ögmundur gefur lítið fyrir þau rök að Magma sé ekki að eignast auðlindirnar heldur aðeins að fá nýtingarrétt. Hann segir þetta vera feluleik en raunveruleikinn sé annar.
,,Ef þú átt þessar virkjanir allar í hálfa öld þá er reyndin sú að þetta er í þinni eigu. Við verðum að leita allra leiða til að snúa þessu máli til baka," segir Ögmundur.





Opnar World Class í skugga deilna
Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“