Einar Skúlason fyrsti maður á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík segir fjölskyldumálin ekkert grín. Spurður út í niðurstöðu úr nýrri skoðanakönnun MMR þar sem Framsókn mælist með 3% fylgi og Besti flokkurinn 36% segir hann ennþá vera tólf daga fram að kosningum.
„Það eru tólf dagar til kosninga og fólk á eftir að átta sig á því hversu miklu máli þessar kosningar skipta,“ segir Einar og bendir á að fjölmiðlar hafi ekki ennþá tekið við sér í að fylgja borgarmálunum á eftir.
„þannig að maður á von á því að síðasta vikan eigi eftir að skipta miklu,“ segir hann.
Þegar hann er spurður út í það hvað flokkurinn stefni á að ná mörgum borgarfulltrúum inn í Borgarráð segir hann flokkinn stefna á að halda að minnsta kosti einum manni inni. „Við stefnum allavega á að halda manninum okkar í borgarstjórn,“ segir Einar.
„Ég vona bara að borgarbúar átti sig á því að það er bara kosið á fjögurra ára fresti. Þannig að það er ekki hægt að kjósa eftir það,“ segir hann og bendir á að menn verði að vera alveg vissir hvernig þeir verja sínu atkvæði þegar þeir komi inn í kjörklefann.
„Þessar kosningar munu skipta miklu máli fyrir fjölskyldurnar í borginni, það er ekkert grín í því. Ekki fyrir fjölskyldurnar,“ segir Einar. Framsóknarflokkurinn ætlar að kynna kosningastefnuskrá flokksins á morgun og biður Einar fólk um að kynna sér málefni flokksins vel. Hann tekur fram að allir frambjóðendur flokksins séu nýjir í borgarmálunum.
Aðaláhersla flokksins verður sú að hækka ekki skatta á kjörtímabilinu, sem og að hækka ekki gjaldskrá umfram verðlagsþróun. „Og standa vörð um viðkvæmustu hópana í samfélaginu,“ segir Einar Skúlason.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
