ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

Siðferði flottræfilsháttar og drambs

Valgeir Örn Ragnarsson valgeir@dv.is
00:02 › 14. maí 2010
Rannsóknarnefnd Alþingis tekur dæmi af því þegar Ólafur réði björgunarsveitarmenn til að gæta þess að óboðnir kæmust ekki í afmælisveislu hans.

Rannsóknarnefnd Alþingis tekur dæmi af því þegar Ólafur réði björgunarsveitarmenn til að gæta þess að óboðnir kæmust ekki í afmælisveislu hans.

Munaðarlíf íslensku útrásarvíkinganna og auðmannanna lýsir siðferði óhófs, flottræfilsháttar og drambs, sem gengur gegn þeim gildum sem einkenndu íslenskt samfélag á 20. öld, að mati siðfræðinefndar rannsóknarnefndar Alþingis. Nefndin fjallar í einum kafla sérstakelga um lúxuslíf hinnar nýju auðstéttar sem varð til á Íslandi um og eftir síðustu aldamót. Í skýrslunni er farið mjög hörðum orðum um lífstíl nýríkra auðmanna.

Nefndin tekur sérstaklega dæmi af því þegar Ólafur Ólafsson eigandi Samskipa réði björgunarsveit til þess að gæta þess að enginn óviðkomandi kæmist inn í veislu sem hann hélt í tilefni af fimmtugsafmæli sínu. „Af öllu þessu sést að hin nýja auðmannastétt barst mikið á og sett voru viðmið um lífsstíl sem ekki hafði þekkst hér áður. Í litlu samfélagi var óhjákvæmilegt að þessi lífsstíll hefði áhrif langt út fyrir raðir þeirra ríkustu,“ segir í skýrslu siðfræðinefndarinnar.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.