„Tvær vikur í farbann,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari um niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Magnúsar Guðmundssonar fyrrverandi forstjóra. Ólafur segir í samtali við DV að verjandi Magnúsar hafi kært farbannsúrskurðinn til Hæstaréttar.
Aðspurður segir Ólafur að embættið hafi farið fram á farbann en ekki hafi verið farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald. Rannsóknarhagsmunir hafi ekki krafist þess.
„Við erum komnir með málið þannig að við töldum okkur ekki þurfa að fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir honum.“
Eins og fram hefur komið á DV.is var Magnús úrskurðaður í tveggja vikna farbann en gæsluvarðhaldsúrskurður yfir honum hefði runnið út í dag klukkan 16.
Gæsluvarðhald yfir Hreiðari Má Sigurðssyni rennur út á miðvikudaginn í næstu viku.
Sjá einnig:
Magnús í farbann- laus úr haldi



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
