ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Magnús í farbann - laus úr haldi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:33 › 14. maí 2010
Magnús Guðmundsson kemur úr yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara í síðustu viku.

Magnús Guðmundsson kemur úr yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara í síðustu viku.

Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, hefur verið úrskurðaður í farbann til tveggja vikna og er því laus úr gæsluvarðhaldi. Héraðsdómur Reykjavíkur ákvað þetta nú fyrir stundu.

Magnús Guðmundsson var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald af Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir viku síðan, úrskurðinn staðfesti Hæstiréttur síðan á mánudaginn var. Gæsluvarðhald yfir Magnúsi hefði runnið út í dag klukkan 16.

Magnús og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, eru báðir grunaðir um umfangsmikla, kerfisbundna og skipulagða markaðsmisnotkun í starfi sínu fyrir Kaupþing á árunum fyrir hrun. Þeir voru báðir handteknir á fimmtudaginn í síðustu viku.

Hreiðar var á föstudaginn í síðustu viku úrskurðaður í tólf daga gæsluvarðhald sem rennur úr á miðvikudaginn í næstu viku.

Fyrr í dag staðfesti Hæstiréttur gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Ingólfi Helgasyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings á Íslandi eftir að héraðsdómur hafði úrskurðað hann í vikulangt gæsluvarðhald á þriðjudaginn síðastliðinn.

Sjá einnig:

Ólafur Þór: Ekki þörf á áframhaldandi gæsluvarðhaldi



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?