ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Illugi segir ákæru á hendur níumenningum pólitíska

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:59 › 14. maí 2010
Illugi Jökulsson segir ákæruna gegn níumenningum vera pólitíska.

Illugi Jökulsson segir ákæruna gegn níumenningum vera pólitíska.

Illugi Jökulsson skrifar grein í helgarblað DV þar sem hann íhugar kærur gegn fólki sem sakað er um að árás á Alþingi. Þar segir hann ákæruna vera pólitíska. Hann tekur undir með Merði Árnasyni um að ekki verði við það unað að bókstafstrú á hegningarlögin eigi við í þessu tilfelli.

„Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, vill láta eins og hún hafi ekki haft neitt um það að segja, það hafi í raun verið skrifstofustjóri Alþingis sem vildi að kært yrði vegna 100. greinarinnar, en þá mega nú raunveruleg völd og líka áhrifavald forsetans vera harla smá og lítilfjörlleg ef hann/hún getur ekki stoppað skrifstofustjóra sinn í máli sem þessu,“ skrifar Illugi.

„Því þessi ákæra er svo augljóslega pólitísk - eins og meðal annars Mörður Árnason hefur bent á - að við það verður ekki unað að bókstafstrú á hegningarlögin eigi við í þessu tilfelli,“ skrifar Illugi.

Illugi segir jafnframt að mótmælin hafi verið sprottin upp úr því ástandi sem varð til á Íslandi í kjölfar bankahrunsins. „Já, það er ekki ofmælt að mestöll þjóðin hafi verið bæði beygð og buguð. Sumir fóru á hausinn, aðrir niður á hnén.“ Hann segir þær stofnanir sem áttu að gæta fjöreggs þjóðarinnar, hafa brugðist.

„Í raun og veru ætti Alþingi að þakka fyrir að einhver skyldi loksins hafa orðið til þess að vekja það, í stað þess að vilja stinga hinum „seku“ í fangelsi í heilt ár að minnsta kosti,“ segir Illugir og bætir því við að Alþingi ætti að skammast sín fyrir þau viðbrögð að draga fólk fyrir dómstól á grundvelli 100. greinarinnar.

Níumenningarnir eru ákærðir á grundvelli 100. greinar hegningarlaga. En samkvæmt henni skal dæma sakborning í fangelsisvist ekki skemur en 1 ár og getur refsing orðið ævilöng ef sakir eru miklar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?