ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

Davíð skynjaði fyrr og betur en aðrir hættuna af þessum mönnum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:07 › 13. maí 2010
Hannes Hólmsteinn segir Davíð Oddsson fyrrverandi forsætisráðherra hafa skynjað fyrr og betur en aðrir, hættuna sem stafaði af „þessum mönnum.“

Hannes Hólmsteinn segir Davíð Oddsson fyrrverandi forsætisráðherra hafa skynjað fyrr og betur en aðrir, hættuna sem stafaði af „þessum mönnum.“

Hannes Hólmsteinn Gissurarson birti nú í kvöld pistil á Pressunni þar sem hann segir meðal annars að ef einhver einn maður beri ábyrgð á hruninu, þá sé það Jón Ásgeir Jóhannesson. Hann segir Davíð Oddsson fyrrverandi forsætisráðherra hafa skynjað fyrr og betur en aðrir, „hættuna sem stafaði af þessum mönnum.“

„Davíð Oddsson hefur lengi þurft að sitja undir því, að hann hataðist við Jón Ásgeir og klíkuna í kringum hann og misbeitti valdi sínu gegn þessu liði. Ég get fullyrt af löngum og miklum kynnum af Davíð, að ekkert er hæft í þessu, þótt Davíð skynjaði fyrr og betur en aðrir hættuna af þessum mönnum, varaði við þeim og vildi takmarka umsvif þeirra,“ skrifar Hannes.

Hannes segir að eftir að hafa lesið stefnu skilanefndar Glitnis gagnvart Jóni Ásgeir og félögum hans sé enginn vafi í hans huga, að Jón Ásgeir hafi stórlega misnotað ítök sín og áhrif í Glitni. „Hann stofnaði sýndarfyrirtæki og gerði málamyndasamninga. Hann var ekki útrásarvíkingur, heldur pappírsvíkingur. Hann skapaði ekki gróða, heldur froðu,“ segir Hannes í pistli sínum.

Hann segir Jón Ásgeir og viðskiptafélaga hafa misbeitt stórkostlegum áhrifum sínum, með aðstoð fjölda leigupenna, gegn Davíð. „Þeim tókst að koma því í kring, að daufheyrst var við viðvörunum Davíðs — með alkunnum afleiðingum.“

Að lokum segir Hannes að „ef einhver einn maður beri ábyrgð á því, að íslensku bankarnir stóðu berskjaldaðir, þegar lánsfjárkreppan skall á Íslandi haustið 2008, þá er hann Jón Ásgeir Jóhannesson.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.