ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Ætlar að mótmæla verði níumenningarnir dæmdir í árs fangelsi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:59 › 13. maí 2010
Egill Helgason sagði í athugasemd á heimasíðu sinni í gær að hann myndi mótmæla yrðu níumenningarnir dæmdir í  árs fangelsi.

Egill Helgason sagði í athugasemd á heimasíðu sinni í gær að hann myndi mótmæla yrðu níumenningarnir dæmdir í árs fangelsi.

Mikil umræða skapaðist í gærkvöldi við færslu Egils Helgasonar á heimasíðu hans um réttarhöldin yfir níumenningunum sem eru ákærðir fyrir að hafa gert árás á Alþingi. Eftir nokkrar umræður, þar sem Egill dró meðal annars í efa að níumenningarnir yrðu dæmdir í árs fangelsi eða meira, tók hann fram í athugasemd að hann myndi mótmæla, ef svo færi.

Egill átti í snörpum orðaskiptum við lesendur síðunnar sem voru margir hverjir ósammála honum, þar á meðal Haukur Már Helgason, rithöfundur og heimspekingur. Egill varði dómsvaldið, og taldi enga ástæðu til þess að véfengja aðferðir þess í þessu máli. Egill sagðist halda að þessi níu manna hópur væri ekki einsleitur. En að hann héldi að í honum væru líka einstaklingar sem væru almennt ekki húsum hæfir.

Haukur spurði Egil meðal annars: „Hversu löng fangelsisvist finnst þér við hæfi, Egill, fyrir það brot að vera „ekki húsum hæfur“, á bilinu eitt til sextán ár? Og: finnst þér þetta meginviðmið gilda um mannréttindi almennt eða aðeins í þessu máli?“

Egill svarar: „Heldur þú Haukur að einhver verði dæmdur í eins árs fangelsi út af þessu – eða sexán ára fangelsi? Hvaða vitleysa er þetta?“

Haukur: „Sannarlega vona ég að þau verði ekki dæmd – ertu að taka undir að ákæruliðurinn um brot á 100. gr. sé fáránlegur og þau hljóti að verða sýknuð ef málinu er á annað borð haldið til streitu?“

Egill: „Það verður enginn dæmdur í árs fangelsi – hvað þá sextán ára.“

Eftir meiri umræður í athugasemdarkerfi Egils birtir Egill síðustu skilaboðin sín: „Ég skal koma út og mótmæla með ykkur þegar níumenningarnir verða dæmdir í 16 ára fangelsi. Mæti líka ef það verður 1 árs fangelsi.“

Níumenningarnir eru ákærðir á grundvelli 100. greinar hegningarlaga. En samkvæmt henni kemur fram að ekki skuli dæma sakborning í fangelsisvist skemur en 1 ár og getur refsing orðið ævilöng ef sakir eru miklar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?