ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Tónleikar á Austurvelli til stuðnings níumenningum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:58 › 12. maí 2010
Hjaltalín verður ein þeirra hljómsveita sem troða upp á tónleikum til stuðnings nímenningunum.

Hjaltalín verður ein þeirra hljómsveita sem troða upp á tónleikum til stuðnings nímenningunum.

Stórtónleikar verða haldnir á Austurvelli næstkomandi laugardag til stuðnings níumenningunum sem eru ákærðir fyrir árás á Alþingi. Meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum eru Hjaltalín, Páll Óskar, KK og Ellen, Ari Eldjárn og fleiri.

Atburðurinn er auglýstur á Facebook undir nafninu Vorkoma, en nú þegar hafa rúmlega 300 manns skráð sig á atburðinn. Ætlunin er að tónleikarnir verði stuðningssamkoma fyrir hina ákærðu mótmælendur, en miðum verður dreift með reikningsnúmeri fyrir frjáls framlög, vegna lögfræðikostnaðar.

Auk þeirra sem áður voru nefndir koma eftirfarandi hljómsveitir og listamenn fram á tónleikunum: Rass, Meðlimir úr Hjálmum, Ólöf Arnalds, Parabólurnar, Varsjárbandalagið, Vilborg Dagbjarts, Jón Atli J. og fleiri.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?