Björn Valur Gíslason þingmaður Vinstri grænna flutti fyrr í dag þingsályktunartillögu þar sem lagt er til að Alþingi fari þess á leit við ríkissaksóknara að ákæra á hendur níu mótmælendum fyrir að hafa 8. desember 2008 rofið friðhelgi og fundarfrið Alþingis, verði dregin til baka, sem og ákæra um húsbrot.
„Reynslan sýnir að þá sjaldan að gripið er til sumra slíkra lagaákvæða orkar beiting þeirra undantekningarlítið tvímælis og ýtir undir hugmyndir um að hún sé sprottin af pólitískum toga eða öðrum annarlegum hvötum fremur en að einungis sé horft til efnisatriðia máls.“ Þetta kemur fram í þingsályktunartillögu Björns sem dreift var á þingi í dag.
Í þinsályktunartillögunni segir meðal annars að „í máli nímenninganna sem nú eru kærðir fyrir að ráðast gegn Alþingi hefur t.d. verið bent á að allmörg dæmi séu um að efnt hafi verið til mótmælaaðgerða í og við þingpalla án þess að slíkum aðgerðum hafi fylgt sérstök eftirmál. Má þar nefna mótmæli ýmissa hagsmunasamtaka, svo sem verkalýðs- og stúdentahreyfinga, þar sem störf þingsins voru trufluð. Einn núverandi ráðherra tók meira að segja þátt í slíkum aðgerðum á háskólaárum sínum.“
Í þingsályktunartillögunni er málið gegn mótmælendum nú lagt að jöfnu við dómsmál gegn mótmælendum sem voru dæmdir fyrir mótmælin gegn inngöngu Íslands að Nató árið 1949. „Dómarnir yfir mótmælendunum 30. mars 1949 voru slæmir að öllu leyti. Þeir voru almennt álitnir pólitískir og gerðu því það eitt að draga úr tiltrú hluta fólks á réttarkerfinu sem hlutlausri stofnun. Þá, líkt og nú, leit enginn mótmælenda svo á að um ræri að ræða árás á þingið – þvert á móti töldu báðir hópar sig vera að verja þingið.“



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
