Fullt er út úr dyrum í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hér sjást lögreglumenn snúa einn úr hópnum niður fyrir utan dómsal. Myndir Róbert Reynisson
Mikill fjöldi fólks er nú samankominn í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem mál ríkissaksóknara á hendur níu mótmælendum er tekið fyrir. Hópur fólks reyndi að ryðja sér leið inn í dómsal en lögregla varnaði fólkinu inngöngu.
Óhætt er að segja að ákæra ríkissaksóknara á hendur mótmælendunum hafi vakið mikla athygli. Fleiri hundruð manns hafa skrifað undir yfirlýsingu þess efnis að annaðhvort verði ákærurnar felldar niður eða allir þeir sem rita nafn sitt á yfirlýsinguna látnir sæta ákæru.
Mótmælendunum er gefið að sök að hafa framið aðför að Alþingi, brotist inn í þinghúsið, valdið uppþoti og ráðist á þingverði og lögreglumenn, mánudaginn 8. desember 2008. Fari málið á versta veg fyrir mótmælendurna níu gætu þeir átt yfir höfði sér 16 ára fangelsi sem er hámarksrefsing en lágmarksrefsing er eitt ár.
Að sögn blaðamanns DV sem er í héraðsdómi er mikill samhugur í fólki. Nokkur þekkt andlit eru á staðnum og má þar nefna Birgittu Jónsdóttur, þingkonu Hreyfingarinnar og Sóleyju Tómasdóttur, oddvita Vinstri grænna í Reykjavík. Þinghaldið hófst klukkan 13:15 og komust færri að en vildu inn í sal 101 þar sem þinghaldið fer fram. Stór hópur fólks stendur fyrir utan salinn og hrópa þeir meðal annars: „Við erum mörg, þeir eru fáir.“
Uppfært klukkan 13:27:
Hópur fólks reyndi að ryðja sér leið inn í dómsal 101 á meðan á þinghaldinu stóð. Lögreglumönnum tókst hinsvegar að varna fólkinu inngöngu og þurfti lögregla að grípa til þess ráðs að snúa fólkið niður. Lítilsháttar átök urðu í kjölfarið.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 








Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
