Þeim fjölgar nokkuð sem segjast bera lítið traust til Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, samkvæmt skoðanakönnun MMR (Markaðs- og miðlarannsóknir ehf.) 67,0% sögðust bera lítið traust til hans nú samanborið við 54,4% í síðustu könnun. Þá sögðust 23,9% bera mikið traust til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra borið saman við 36,0% í síðustu könnun.
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun MMR bera flestir eða 37,6% mikið traust til Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra. Traust til Steingríms J. Sigfússonar helst nær óbreytt frá síðustu könnun MMR í september 2009. Þá sögðust 23,9% bera mikið traust til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra borið saman við 36,0% í síðustu könnun. Fyrir rúmu ári síðan í febrúar 2009 kváðust 58,5% bera mikið traust til Jóhönnu.
Rúmlega 40% svarenda sögðust bera lítið traust til Steingríms og helst það svo til óbreytt frá síðustu könnun en þeim fjölgar nokkuð sem segjast bera lítið traust til Jóhönnu eða 52,9% borið saman við
39,8% í síðustu könnun. Næst flestir eða 26,7% sögðust bera mikið traust til Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands en 46,9% sögðust bera lítið traust til hans.
Nú segjast 16,1% bera mikið traust til Birgittu Jónsdóttur, formanns þinghóps Borgarahreyfingarinnar en 7,4% báru mikið traust til hennar skv. könnuninni í september 2009. Þeim sem segjast bera lítið traust til Birgittu fækkar nokkuð milli kannanna, nú segjast 55,4% bera lítið traust til hennar borið saman við 63,0% í síðustu könnun.
Ef litið er á afstöðu svarenda til stjórnmálaflokka, má t.d. sjá að Steingrímur J. Sigfússon nýtur trausts
meðal 88,1% þeirra sem segjast myndu kjósa Vinstri græna væri gengið til kosninga nú, Jóhanna Sigurðardóttir nýtur trausts meðal 75,6% stuðningsmanna Samfylkingarinnar, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson nýtur trausts meðal 70,3% Framsóknarmanna og Bjarni Benediktsson nýtur trausts meðal 55,6% Sjálfstæðismanna.
Spurt var: Hve mikið eða lítið traust berð þú til eftirfarandi aðila. Svarmöguleikar voru mjög lítið traust, frekar lítið traust, hvorki mikið né lítið traust, frekar mikið traust, mjög mikið traust
og veit ekki. Niðurstöður sýna fjölda þeirra sem svöruðu annað hvort mjög/frekar mikið eða lítið traust. Samtals tóku 99,1% afstöðu til spurningarinnar.
MMR kannaði traust almennings til forystufólks í stjórnmálum en í úrtaki voru Íslendingar á aldrinum 18-67 ára. 976 svöruðu könnuninni sem tekin var á tímabilinu 4. - 10. maí.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
