„Það var nú eiginlega ekkert hægt að gera þarna inni út af látum sem voru fyrir utan dómsalinn. Það kom mér á óvart að dómarinn skyldi ekki stöðva þinghaldið miðað við þau hljóð sem bárust hingað inn og hurðin þrýstist ítrekað inn eins og það væru átök í gangi fyrir utan dómsalinn,“ segir Snorri Páll Jónsson, einn þeirra sem ákærður er fyrir húsbrot á Alþingi í nóvember 2008. Fyrirtaka í málinu fór fram í dag.
Nokkur hundruð manns fylltu húsakynni Héraðsdóms Reykjavíkur um klukkan 13 í dag, þegar málið var tekið fyrir. Verði mótmælendurnir fundnir sekir, geta þeir átt yfir höfði sér þunga dóma.
Þinghaldið átti að vera opið en aðeins rúmlega 20 manns fengu að sitja í dómsal á meðan málið var tekið fyrir. Thor Vilhjálmsson rithöfundur var einn þeirra sem ætlaði að fylgjast með réttarhaldinu en var ekki hleypt inn í dómsal. Blaðamanni DV var hleypt inn í dómsal en vísað út áður en réttarhaldið hófst á þeim forsendum að salurinn væri fullur. Í fjölmörgum öðrum dómsmálum hafa blaðamenn hins vegar þurft að standa í dómsal vegna þess að öll sæti eru upptekin. Í dag var áhorfendum hins vegar vísað út þegar öll sæti voru upptekin.
Aðspurður um hvað hafi farið fram á bak við luktar dyrnar, svarar Snorri Páll: „Ragnar Aðalsteinsson krafðist þess að tveir óeinkennisklæddir lögreglumenn sem voru hérna færu út og það væri ekki hægt að hafa þinghaldið á meðan þeir væru hérna og á meðan lögreglumenn stæðu frammi og hömluðu fólki frá að vera vitni að opnum réttarhöldum. “
Á meðan réttarhaldið fór fram hrópaði hópur fólks slagorð og krafðist þess að fólk fengi að fylgjast með. Hópurinn hrópaði meðal annars slagorðin: „Við viljum inn!“ og „Hvers hús? Okkar hús!“
Til átaka kom á milli lögreglu og mótmælenda þegar hópur fólks reyndi að komast inn í dómsalinn. Lögreglan varnaði þeim inngöngu og var liðsauki kallaður til. Um tíu lögregluþjónar gættu þess að mótmælendur kæmust ekki inn í réttarhaldið.
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar var ein þeirra sem var í dómsal í dag. „Ég er bara að nota rétt minn til þess að fylgjast með opnum réttarhöldum, en ég kemst því miður ekki að, ég kom of seint og það er svo löng biðröð. Það er mjög mikilvægt að veita öllum hliðum stjórnvaldsins aðhald. Almenningur á rétt til þess og á að gera það. Mér finnst frábært hvað eru margir hér sem vilja fá að fylgjast með hvað er í gangi því það er ekki bara verið að ákæra þessa níu heldur alla sem tóku þátt í búsáhaldabyltingunni og þá sem studdu hana,“ segir Birgitta.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 






Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
