ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Hreiðar talinn líklegur til að torvelda rannsóknina

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:45 › 11. maí 2010
Hreiðar Már.

Hreiðar Már. Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson

Samkvæmt gæsluvarðhaldsúrskurði Hæstaréttar taldi embætti sérstaks saksóknara Hreiðar Má Sigurðsson líklegan til að torvelda rannsókn málsins og því var farið fram á gæsluvarðhald yfir honum.

Viðskiptablaðið fjallar um gæsluvarðhaldsúrskurðinn á vef sínum í dag og hefur hann undir höndum þrátt fyrir að um lokað þinghald hafi verið að ræða vegna rannsóknarhagsmuna.

Tekið er fram í úrskurði Hæstaréttar að framburður Hreiðars sé að „ýmsu leyti ekki í samræmi við framburð annarra sem þegar hafa gefið skýrslu við rannsókn málsins.“ Fleiri eigi þá eftir að gefa skýrslur, bæði vitni og eftir atvikum sakborningar.

Hreiðar Már er samkvæmt gæsluvarðhaldsbeiðni sérstaks saksóknara grunaður um fjölmörg brot sem fangelsisrefsing liggur við. Eiga þau að hafa verið framin á árunum 2005 til og með 2008.

Að venju skilaði Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari sérákvæði og taldi að Hreiðar hefði engin gögn sem gætu torveldað rannsókn málsins. Hann væri hins vegar sammála forsendum og niðurstöðu meirihluta dómara um að ekki væri efni til að fallast á kröfu verjenda Hreiðars um ómerkingu gæsluvarðhaldsúrskurðarins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?