Nýr listi Ólafs F. Magnússonar borgarfulltrúa er einstaklega vel mannaður glæsilegum konum að sögn Ólafs. Hann segir það vera eina af sérstöðu H-listans hversu fallegar konurnar eru á þeim lista og segir þær mun fallegri en hjá hinum flokkunum. „Það eru 17 konur á listanum hjá mér, hver annarri glæsilegri,“ segir Ólafur F. í samtali við DV.
Ekki nóg með að Ólafur F. telur konurnar á sínum lista vera glæsilegri en hjá hinum flokkunum þá finnst honum þær komast nær því að vera fjallkonur. „Þetta eru konur alls staðar að úr samfélaginu,“ segir Ólafur og bætir við að þær séu jafnréttissinar en ekki femínistar. Það hentar Ólafi F. eflaust einstaklega vel því hann segir femínista oftast nær ekki líka vel við hann. „Þeim líkar yfirleitt bara illa við mig,“ segir Ólafur F. án þess að fara nánar út í þá sálma.
Ólafur F. segir aðalsérstöðu H-listans vera að hans fólk hafi eitthvað annað fram að færa en fíflagang og fjórflokk. „Við erum eini flokkurinn sem hefur eitthvað annað fram að færa en fíflagang og fjórflokk,“ segir Ólafur F. sem segir baráttumál H-listans vera að hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni, stórefldar almenningssamgöngur, sameining sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, lækkun eða niðurfelling þjónustugjalda fyrir börn, unglinga, aldraða og öryrkja og, umfram allt, eitt samfélag fyrir alla.




Þau drög að uppsögn Gunnars Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, sem birst hafa almenningi, bera þess merki að annarleg sjónarmið kunni að liggja að baki. Svo mikið lá á að koma Gunnari ... 
Skátar hefja nýja skátaöld
Strauss- Kahn laus úr haldi
Ísland greiðir 1400 milljónir í þróunarsamvinnu
„Ég greiddi hátt í 600,000 krónur í skatt í síðasta mánuði“
Segir auglýst eftir kvörtunum vegna Dróma