ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Hreiðar handtekinn: Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:28 › 10. maí 2010
Hreiðar Már Sigurðsson.

Hreiðar Már Sigurðsson.

Hæstiréttur staðfesti í kvöld gæsluvarðhaldsúrkurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir bankamönnunum Hreiðari Má Sigurðssyni og Magnúsi Guðmundssyni. Hreiðar var úrskurðaður í tólf daga gæsluvarðhald og Magnús í vikulangt gæsluvarðhald á föstudag af Héraðsdómi Reykjavíkur. Sérstakur saksóknari hefur beðið um að úrskurður Hæstaréttar birtist ekki á heimasíðu dómstólsins af ótta við að þar komi fram upplýsingar sem geti skaðað rannsóknina að því er fram kemur á vef Ríkisútvarpsins.

Sex millistjórnendur og undirmenn í gamla Kaupþingi hafa verið í yfirheyrslum síðan á föstudag vegna málsins. Er gæsluvarðhaldið yfir Hreiðari Má og Magnúsi komið til svo menn geti ekki samræmt frásagnir sínar. Einnig hafa fleiri fyrrverandi stjórnendur bankans verið boðaðir til yfirheyrslu en von er á tveimur þeirra frá Lúxemborg. Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, hefur ekki flýtt för sinni hingað til lands svo hægt sé að yfirheyra hann en sérstakur saksóknari lagði fram þá beiðni við Sigurð.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?