ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Barbara Ehrenreich verður á Bifröst

Baldur Guðmundsson baldur@dv.is
12:41 › 1. maí 2010
Barbara Ehrenreich heldur fyrirlestur á ráðstefnunni Tenglanet V, sem haldin verður á Bifröst í lok maí.

Barbara Ehrenreich heldur fyrirlestur á ráðstefnunni Tenglanet V, sem haldin verður á Bifröst í lok maí.

„Bandaríski metsölurithöfundurinn Barbara Ehrenreich verður aðalfyrirlesari á Tengslaneti V- Völd til kvenna ráðstefnunni sem haldin er 27. til 28. maí næstkomandi. Ehrenreich þykir einn róttækasti samfélagsgagnrýnandi sem nú er á ritvellinum,“ að því er segir í tilkynningu frá Dr. Herdísi Þorgeirsdóttur prófessor, sem er stofnandi og skipuleggjandi ráðstefnunnar.

Ráðstefnan var fryst haldin árið 2004 en árið 2008 sló hún aðsóknarmet þegar um 500 konur sóttu ráðstefnuna.

Barbara skrifaði bókina Nickel and Dimed, sem var í ár valin ein af tíu bestu bókum síðasta áratugar á sviði rannsóknarblaðamennsku af blaðamannstofnun New York háskóla.
Hún er þekkt fyrir baráttu sína fyrir réttindum kvenna, er doktor í líffræði en hefur helgað líf sitt ritstörfum, að því er segir í tilkynningunni. Þar kemur fram að hún er dálkahöfundur í New York Times og vinsæll gestur í sjónvarpsþáttum. Lundúnablaðið New York Times hafi kallað hana Jonathan Swift samtímans vegna skarprar sýnar hennar á öfgar og óréttlæti.

„Þegar hún skrifaði Nickel and Dimed gerðist hún sjálf gengilbeina til að kynnast af eigin raun kjörum þeirra sem komast ekki af í Bandaríkjunum. Hún er sjálf hámenntuð en sagði að láglaunastörf ætluð þeim sem enga færni hafa væru í raun störf sem krefðust oft mikillar einbeitingar, úthalds og þess að fólk sé fljótt að hugsa,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

Yfirskrift tengslanetsins í ár er: Sinnaskipti, samskipti og hugrekki en annar aðalfyrirlesara er Dr. Sigríður Benediktsdóttir, einn höfunda rannsóknarskýrslu Alþingis. Hún mun fjalla um hugrekki í erindi sínu um aðdraganda og eftirmála hrunsins. Um 30 aðrar konur eru með framsögur á ýmsum sviðum.

Dagskrá ráðstefnunnar er á heimasíðu Bifrastar www.bifrost.is Þar er einnig hægt að skrá sig og fá upplýsingar um gistingu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?