ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.0° 9m/s E

Glitnispóstar: Broskallinn sem hvarf gæti verið hugbúnaðargalli

18:20 › 9. apríl 2010
Broskallinn sem hvarf úr tölvupóstsamskiptum Jóns Ásgeirs og Lárusar Welding í stefnu skilanefndar Glitnis er orðinn að málshöfðun.

Broskallinn sem hvarf úr tölvupóstsamskiptum Jóns Ásgeirs og Lárusar Welding í stefnu skilanefndar Glitnis er orðinn að málshöfðun.

Jón Ásgeir Jóhannesson segir að skilanefnd Glitnis hafi slitið tölvupósta sína til Lárusar Welding úr samhengi í stefnu sinni á hendur þeim tveimur og fleirum. Jón Ásgeir hefur lýst því yfir að broskall fyrir aftan setningu þar sem hann segir við Lárus að kannski sé best að hann verði starfandi stjórnarformaður Glitnis hafi verið klipptur út í stefnu skilanefndarinnar til að gera setninguna tortryggilega.

Setningin umdeilda hljóðar svo:

„Þetta eru málin nenni ekki að bögga ykkur á hverjum degi með þessu enda ætlast ég til að CEO þessara félaga vinni sín mál ef við komum þessum málum frá þá er borðið mitt hreint. Annars er kannski best að ég verði starfandi stjórnarformaður GLB.“

Hvort heldur sem er að Jón Ásgeir hafi í raun sett broskall fyrir aftan setninguna til að gefa til kynna að hann hafi verið að grínast, eða að skilanefndin hafi kippt honum út í þeim tilgangi sem Jón Ásgeir heldur fram þá er þriðji möguleikinn til staðar. Að broskallinn sem um ræðir hafi orðið hvimleiðum hugbúnaðargalla í Microsoft Outlook að bráð.

Þekktur galli í Outlook er nefnilega að broskallar í tölvupóstum verða oft að stóru j-i þegar tölvupóstar fara á milli tölva. Broskallinn kann því að hafa orðið að stóru j-i sem skilanefndin gæti hafa túlkað sem samhengislausa innsláttarvillu Jóns Ásgeirs eða hreinlega sem undirskrift hans með upphafsstaf sínum á eftir skilaboðunum.

Talsvert er ritað um dularfulla j-ið í tölvupóstum á hinum ýmsu tæknisíðum á veraldarvefnum. Til að einfalda málið má setja það upp á þennan hátt:

Ef Jón Ásgeir var til dæmis að senda meintan spaugpóst sinn úr Outlook þá býr forritið til broskall úr skipuninni: :)

Ef móttakandinn, Lárus Welding, er hins vegar með annars konar tölvupóstforrit þá birtist broskallinn sem Outlook býr til sem stórt j í glugga bankaforstjórans fyrrverandi.

Eins og fram kemur meðal annars í Fréttablaðinu í dag hefur Jón Ásgeir stefnt skilanefnd Glitnis fyrir ærumeiðandi aðdróttanir sem fram koma í stefnu hennar og fyrir að hafa vísvitandi breytt tölvugögnum. Kenninguna um dullarfulla j-ið væri því annaðhvort hægt að nýta við málsókn Jóns Ásgeirs fyrir dómstólum eða að skilanefndin gæti notað hana sér til varnar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.