Undrandi. Steingrímur segir að málið hljóti að verða rannsakað sem sakamál. Mynd Rakel Ósk Sigurðardóttir
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að mál sexmenninganna sem skilanefnd Glitnis hefur stefnt hljóti að verða rannsakað sem sakamál. „Maður bara nuddar augun og trúir þessu varla,“ segir Steingrímur í samtali við Smuguna.
Þar kemur fram að Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, hafi staðfest að málið væri ekki til rannsóknar hjá embættinu en útilokaði þó ekki að það myndi rata inn á borð þess enda ber skilanefndum að tilkynna grun um saknæmt athæfi til embættisins.
Steingrímur segir við Smuguna að margir hafi óttast að einkavæðing bankana, eins og að henni var staðið, bæri ógæfuna í sér og eigendur myndu fara um bankana og gefa stjórnendum fyrirmæli. Það sé komið á daginn.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
