Vilhjálmur segir að ákvörðun skilanefndar Glitnis að stefna sex eigendum og stjórnendum bankans komi sér ekki á óvart. Mynd DV
Sú ákvörðun skilanefndar Glitnis að stefna sex eigendum og stjórnendum bankans sýnir að bankinn hafi verið rændur innan frá. Þetta sagði Vilhjálmur Bjarnason, lektor í viðskiptafræði, á Morgunvakt Rásar 2 í morgun.
Eins og greint var frá í gær hefur skilanefndin stefnt sex manns og krafið þá til greiðslu sex milljarða króna. Þar á meðal er Jón Ásgeir Jóhannesson og Pálmi Haraldsson en þeim er stefnt fryrir að beita eigendavaldi gagnvart bankanum. Þá er Lárusi Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, einnig stefnt ásamt þremur öðrum starfsmönnum bankans.
Vilhjálmur segist ekki hissa á stefnunni og í kjölfarið hljóti hluthafar að skoða stöðu sína og hugsanlegar skaðabótakröfur í framhaldinu. Sagði Vilhjálmur að menn hafi búið til lánareglur og sýnt eftirlitsaðilum - eftir þeim hafi hinsvegar ekki verið farið.
Eins og greint var frá í gær er sexmenningunum stefnt fyrir lánveitingu sumarið 2008 og í stefnunni er lýst fléttu sem átti að skila Pálma Haraldssyni milljarði og fjórir milljarðar eigi að fara til uppgreiðslu á lánum. Lánið sem um ræðir var til dótturfyrirtækis Fons en á þessum tíma var Fons í vanskilum við Glitni.
Í stefnunni eru meðal annars birtir tölvupóstar frá Jóni Ásgeiri til Lárusar Welding. Í því segir Jón Ásgeir meðal annars: „Þetta eru málin nenni ekki að bögga ykkur á hverjum degi með þessu enda ætlast ég til að CEO þessara félaga vinni sín mál. Ef við komum þessum málum frá þá er borðið mitt hreint. Annars er kannski best að ég verði starfandi stjórnarformaður Glitnisbanka.“
Á Morgunvaktinni í morgun sagðist Vilhjálmur túlka þessi orð Jóns Ásgeirs sem hótun um að hann gerist einhverskonar yfirstjórnandi í bankanum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
