ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Stefnt vegna sex milljarða láns til að kaupa í Aurum

16:20 › 7. apríl 2010
Stefna skilanefndar Glitnis skarast við stefnu  þrotabús Fons á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni: Í báðum tilfellum snúast stefnurnar að hluta um lánveitingar út úr Glitni vegna kaupa í Aurum.

Stefna skilanefndar Glitnis skarast við stefnu þrotabús Fons á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni: Í báðum tilfellum snúast stefnurnar að hluta um lánveitingar út úr Glitni vegna kaupa í Aurum.

Stefna skilanefndar Glitnis snýst um 6 milljarða lán sem FS38 ehf. var veitt til að kaupa hlutabréf eignarhaldsfélagsins Fons í bresku skartgripakeðjunni Aurum HoldingsLtd. Sexmenningarnir sem hefur verið stefnt eru krafðir til að greiða sex milljarðana aftur til Glitnis. Stefna skilanefndarinnar skarast við stefnu gegn Jóni Ásgeir Jóhannessyni sem þrotabú Fons hefur gefið út á hendur honum. Í báðum tilfellunum snúast stefnurnar að hluta um lánveitingu Glitnis til FS38 vegna Aurum kaupanna.

Í stefnu þrotabús Fons gegn Jóni Ásgeiri, sem þingfest var í lok janúar síðastliðinn, kemur fram að FS38 hafi um sumarið 2008 keypt hlutabréf Fons í Aurum fyrir sex milljarða króna. Glitnir lánaði FS38 sex milljarða króna til að kaupa hlutabréfin í Aurum af Fons - Pálmi Haraldsson átti bæði FS38 og Fons og var því að kaupa hlutabréf af sjálfum sér. Milljarðana sex átti því að nota til að kaupa hlutabréfin í Aurum af Fons.

Í stefnunni segir að lánið frá Glitni hafi verið greitt út þannig að fyrst hafi 2,5 milljarða skuld Fons við Glitni verið greidd upp. Fons hafði fengið lánið frá Glitni árið 2007 og endurlánaði það svo til FS38. Þaðan voru fjármunurnir lánaðir til FS37 ehf. sem síðar var endurskírt Stím ehf. 2 milljarðar voru svo greiddir inn á bankareikning Fons í Glitni og 1,5 milljarður var settur sem trygging fyrir markaðsviðskiptum Fons hjá Glitni. Milljarðarnir tveir sem fóru inn á bankareikning Fons runnu svo til Jóns Ásgeirs og til Kaupþings í Lúxemborg en Fons skuldaði þeim banka milljarð króna.

Eins og málið lítur út runnu því sex milljarðar út úr Glitni og til félags í eigu Pálma Haraldssonar vegna kaupa á hlutabréfum sem einnig voru í eigu félags sem Pálmi átti. Hlutabréfin fóru frá einu félagi til annars í eigu Pálma og peningarnir sem fengust fyrir hlutabréfin, sem fengnir voru að láni frá Glitni, voru notaðir að hluta til að borga upp skuldir Fons vegna Stím-málsins. í staðinn fyrir að Fons skuldaði Glitni 2,5 milljarða skuldaði FS38 milljarðana 2,5 auk 3,5 milljarða til viðbótar. Tveir milljarðar af því fóru svo til að greiða upp aðra skuld Fons auk þess sem ráðandi aðili í stærsta hluthafa Glitnis, Jón Ásgeir Jóhannesson, fékk 1 milljarð af þessum 6 inn á bankareikninginn sinn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?