ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Nýir eigendur DV

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:04 › 7. apríl 2010
Fyrsti hluthafafundur DV ehf. var haldinn í höfuðstöðvum verðbréfafyrirtækisins Arev í kjölfar kaupanna á DV fyrir páska.

Fyrsti hluthafafundur DV ehf. var haldinn í höfuðstöðvum verðbréfafyrirtækisins Arev í kjölfar kaupanna á DV fyrir páska.

  • Þórir Jökull Þorsteinsson prestur er einn nýrra hluthafa í DV.

    Þórir Jökull Þorsteinsson prestur er einn nýrra hluthafa í DV.

  • Lilja Skaftadóttir listaverkasali á tæplega þriðjungshlut í DV.

    Lilja Skaftadóttir listaverkasali á tæplega þriðjungshlut í DV.

Ritstjóri, prestur, listaverkasali og hjartalæknir eru á meðal nýrra eigenda DV. Um mánaðarmótin keypti dreifður hópur áhugamanna um frjálsa fjölmiðlum DV af útgáfufélaginu Birtíngi, sem er í eigu Hreins Loftssonar lögmanns. Hér er listinn yfir nýja eigendur DV birtur í heild sinni.

Í kjölfar þess að DV fór í dreifða eignaraðild var ákveðið að haga lögum félagsins með þeim hætti að þau stuðluðu að því að fjölmiðillinn yrði eins frjáls og óháður og unnt væri um ókomna tíð.

Samþykkt var einróma að í lögum DV væri kveðið á um að enginn hluthafi réði meira en 26% atkvæðamagns í ákvörðunum félagsins, hversu stóran hlut sem hann ætti í félaginu. Samþykktir félagsins verða birt á DV.is síðar í dag og verður uppfærðum hluthafalista haldið við á vefnum í þeim tilgangi að auka gegnsæi.

Hluthafar í DV ehf.

Reynir Traustason, ritstjóri DV 33.04%
Lilja Skaftadóttir Hjartar, listaverkasali, búsett í Frakklandi 31.47%
Óstofnað félag í eigu Boga Emilssonar, framkvæmdastjóra DV, og Halldórs Jörgenssonar, yfirmanns Microsoft á Íslandi, 15.74%
Catalina ehf, í eigu Steingríms Stefnissonar 3.15%
Arev verðbréfafyrirtæki hf. 2.36%
Jón Trausti Reynisson, ritstjóri DV 2.12%
Ingi F. Vilhjálmsson, blaðamaður DV 1.57%
Hildur Helga Sigurðardóttir fjölmiðlakona 1.57%
Dagmar Una Ólafsdóttir jógakennari 1.57%
Meiriháttar ehf, í eigu Sigurdórs Sigurðssonar framkvæmdarstjóra 1.57%
Þórir Jökull Þorsteinsson prestur 1.57%
Gísli Jónsson hjartalæknir 1.57%
Kolbeinn Þorsteinsson, blaðamaður DV 0.79%
Víkurós ehf, réttingarverkstæði í Reykjavík, í eigu feðganna Hjartar Erlendssonar og Erlends Hjartarsonar 0.79%
Hrafn Margeirsson bifreiðarstjóri 0.79%
Sigríður Sigursteinsdóttir ellilífeyrisþegi 0.31%



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?