Stefna gegn sex af eigendum og starfsmönnum Glitnis sem DV greinir frá í dag tengist hinu fræga Stím-máli sem mikið hefur verið rætt um í fjölmiðlum frá bankahruninu. Líkt og kom fram í yfirlýsingu frá Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, snýst stefnan gegn honum, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Pálma Haraldssyni og þremur starfsmönnum Glitnis um lánveitingu til einkahlutafélagsins FS38 ehf. Það félag tók við 2,5 milljarða lánveitingu frá Glitni á haustmánuðum 2007 og endurlánaði upphæðina strax aftur til einkahlutafélagsins FS37 sem síðar var endurskírt Stím. Bæði FS38 og FS37 voru á þessum tíma í eigu einkahlutafélagsins Pálma Haraldssonar, Fons.
FS37 keypti hlutabréf í Glitni og FL Group fyrir tæpa 25 milljarða króna þann 14. nóvember árið 2007. Þá hafði félagið skipt um eigendur og var ekki lengur í eigu Fons. Tæpir 20 milljarðar voru fengnir að láni frá Glitni. Tveimur dögum síðar, þann 16. nóvember, skipti félagið um nafn og var kallað Stím.
Sérstakur saksóknari efnahagshrunsins hefur verið með Stím-málið til rannsóknar. Verið er að athuga hvort markaðsmisnotkun hafi átt sér stað í viðskiptunum með hlutabréfin sem Stím keypti og að tilgangur þeirra hafi verið að falsa eftirspurn eftir hlutabréfum í Glitni og FL Group -16,5 milljarðar af upphæðinni voru notaðir til að kaupa hlutabréf í bankanum. Tilgangurinn með því gæti svo aftur verið að halda upp hlutabréfaverði í FL Group og Glitni og þannig að verja hagsmuni hluthafanna.
Stímmálið þykir líkjast tveimur öðrum málum sem tengjast hinum stóru viðskiptabönkunum tveimur: Al-Thani-málinu í Kaupþingi og Imon-málinu í Landsbankanum. Bæði þessi mál hafa verið til rannsóknar hjá embætti sérstaks saksóknara í nokkra mánuði. Athygli vekur að Fons, félagið sem átti FS37 sem síðar varð Stím, var stór hluthafi í FL Group. FL Group var svo aftur stærsti hluthafinn í Glitni. Ráðandi aðilar í þessum tveimur félögum voru viðskiptafélagarnir Pálmi Haraldsson og Jón Ásgeir Jóhannesson sem nú hefur verið stefnt. Málið lítur því þannig út að einn stærsti hluthafinn í FL Group, Fons, var eigandi félags sem síðar keypti hlutabréf fyrir tæpa 25 milljarða króna í félögum sem Fons var beinn eða óbeinn hluthafi í.
Í fréttaskýringu um Stím-málið sem birt var í DV í lok síðasta árs kom fram að samkrull Fons og Glitnis hefði verið þannig að eigendur Fons gátu losað sig við félagið FS38 aftur til Glitnis ef eigandi þess, Pálmi Haraldsson, kærði sig um það. „Það var gengið þannig frá því að það var söluréttur á félaginu [Innskot blaðamanns: FS38]. Hann var hluti af þeim gagnkvæmu réttindum sem voru á milli Fons og bankans. Í honum fólst að Fons gat hent félaginu í Glitni aftur. Þessi söluréttur var nýttur á sínum tíma. Þannig að félagið tilheyrir ekki lengur Fons,“ segir heimildarmaður DV innan úr bankakerfinu en hann segir að Fons hafi nýtt sér þennan sölurétt eftir bankahrunið í haust. Þannig gátu eigendur Fons losað sig undan allri ábyrgð á félaginu og skuldbindingum þess og varpað þeim yfir á Glitni. Skilanefnd Glitnis ræður því nú yfir FS38 og er því að stefna sexmenningunum vegna lánveitinga til félags sem skilanefndin sjálf ræður nú yfir.
Þetta lán frá Glitni var veitt án allra ábyrgða eða veða. Af þessum ástæðum tapaði Fons því engu á því að taka lánið eða veita því áfram til FS38 þar sem engin veð voru nokkru sinni fyrir hendi. Því má segja að þeir einu sem hafi tapað á lánveitingunni hafi verið hluthafar Glitnis, sem var almenningshlutafélag á þeim tíma.
Keðjan var því sú að banki sem var í óbeinni eigu Fons í gegnum FL Group lánaði félagi í eigu Fons, FS38, 2,5 milljarða króna. FS38 lánaði síðan öðru félagi í eigu Fons, FS37, sömu upphæð. FS37 keypti þá hlutabréf í FL Group og Glitni, félögum sem voru í beinni og óbeinni eigu Fons, með umræddri lánveitingu og frekara láni frá Glitni upp á tæpa 20 milljarða króna. „Þetta lán bara gengur niður eftir keðjunni, úr einum vasa í annan í gegnum milliliði. Frá Glitni, í gegnum Fons og svo koll af kolli og endar með því að vera notað til að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group,“ segir heimildarmaður DV en seljandi Stím-bréfanna var, líkt og áður hefur komið fram, Glitnir sjálfur.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
