ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.8° 8m/s SSE

Gæti haft áhrif um allt norðurhvel

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:49 › 26. apríl 2010
Eldgosið í Eyjafjallajökli gæti haft víðtæk veðurfarsleg áhrif um allt norðurhvel. Þessar mögnuðu myndir af gosinu tók Guðrún Ýr Bjarnadóttir.

Eldgosið í Eyjafjallajökli gæti haft víðtæk veðurfarsleg áhrif um allt norðurhvel. Þessar mögnuðu myndir af gosinu tók Guðrún Ýr Bjarnadóttir.

Sigurður Þ. Ragnarsson jarð- og veðurfræðingur skrifar fyrir DV:

Eldgos á Suðurlandi hafa oftar en ekki leitt miklar hörmungar yfir íslenska þjóð. Reynslan kennir okkur að áhrifanna gætir víða og stundum lengi og þá með margvíslegum hætti. Nægir að nefna horfelli, bæði manna og dýra, sveitir leggjast í eyði auk þess sem eldgos sem hér hafa orðið hafa haft áhrif á veðurfar víða um jörðina og þá til kólnunar.

Enda þótt gosið í Eyjafjallajökli sé á mælikvarða margra annarra gosa fremur lítið er rétt að hafa í huga að enn vitum við ekki hversu lengi það varir og hvort það muni leiða til eldvirkni í nálægum eldstöðvum. Allt á þetta eftir að skýrast er fram í sækir.

Sé horft á söguna er eins og reglulega komi hörmungartímabil með tilheyrandi harðindum. Árið 1755 gerði afar öflugt Kötlugos og segir í Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar að 6. október hafi skollið á niðaþoka með miklu öskufalli svo aðeins sást örfá skref áfram. Töluverður vindur var og frost. Svo segir: „Askan smaug einnig í gegnum föt okkar og inn á okkur bera. Við urðum svartir í andliti...allt sem við hræktum úr okkur var kolsvart. Hestarnir gátu hvorki bitið né haldið augunum opnum. Tveir þeirra urðu blindir af því að augnlokin greru saman.“ Í kjölfar þessa atburðar lagðist fjöldi bújarða í Vestur-Skaftafellssýslu í eyði. Á þessari lýsingu má glöggt gera sér í hugarlund hvernig ástand getur orðið og sem vel getur orðið enn þann dag í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?