Truflun er á flugi til og frá Keflavíkurflugvelli og er ferðalöngum bent á að fylgjast með fréttum og heimasíðum flugfélaganna og Keflavíkurflugvallar. Vél Iceland Express frá Alicante lenti á Akureyrarflugvelli í nótt. Icelandair flýgur frá Akureyri á hádegi til Glasgow.
Loftrýmið umhverfis Keflavíkurflugvöll og Reykjavíkurflugvöll lokast fyrir blindflugsumferð í dag vegna spár um öskufalls úr Eyjafjallajökli.
Innanlandsflug til og frá Reykjavíkurflugvelli er hins vegar á áætlun. Truflun verður þó á flugi til Vestmannaeyja í dag.
Starfsemin hefur verið stóraukin á Akureyri með slökkviliði og landamæravörslu. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á Akureyrarflugvelli.
Von á vél til Akureyrar frá Manchester um kl: 15:00 í dag og einnig vél frá Glasgow um kl: 19:00. Hvor um sig áætluð með 180 farþega.
Síðasta vélin sem lenti á Keflavíkurflugvelli í nótt var flug Icelandair frá Sevilla. Hún lenti um fimm.
Fjórar farþegaþotur áttu að koma til Keflavíkur frá Ameríku á sjöunda tímanum. Þeim verður flogið til Glasgow og síðan til Akureyrar síðar í dag.
Frá Iceland Express
Vélar Iceland Express til Kaupmannahafnar og Berlínar, sem áttu að fara í dag, verða sameinaðar í einu flugi frá Akureyri í dag. Farþegum verður ekið til Akureyrar og fara langferðabílar frá BSÍ klukkan 11:00. Vél félagsins til London Gatwick, sem fara átti snemma í fyrramálið verður frestað um 24 tíma.
Farþegar sem eiga bókað flug með félaginu eru beðnir að fylgjast vel með, því áætlun getur breyst með stuttum fyrirvara.
Frá Flugfélagi Íslands
Flugfélag Íslands hefur hafið flug
Reykjavíkurflugvöllur hefur verið opnaður. Flugfélag Íslands flýgur sjónflug. Veðurskilyrði eru hagstæð. Miðað við verðurspá í dag, föstudaginn 23.apríl að þá reiknar Flugfélag Íslands með að halda uppi áætlun.
Farið var til Akureyrar frá Reykjavík KL.09:00 og Ísafjarðar KL.09:15. Það er áætluð brottför til Egilsstaða KL.11:00 og athugun á Vestmannaeyjar KL:15:45.
Farþegum er bent á að skoða heimasíðu Flugfélags Íslands (www.flugfelag.is) og textavarp RÚV til að fylgjast með stöðu á hverju flugi fyrir sig.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
