Eftir að hafa valdið gríðarlegum truflunum á flugumferð í Evrópu síðastliðna viku virðist allt stefna í að eldgosið í Eyjafjallajökli muni loka loftrýminu í kringum tvo stærstu alþjóðaflugvelli landsins frá miðnætti á og í að minnsta kosti 12 tíma.
Eins og DV.is greindi frá í dag eru taldar líkur á því að Keflavíkurflugvöllur lokist á morgun. Nú er sömuleiðis búist við að loftrýmið umhverfis Reykjavíkurflugvöll lokist fyrir blindflugsumferð í ákveðinn tíma.
Gjósan mun þó ekki ná norður á land og verða alþjóðaflugvellirnir á Akureyri og Egilsstöðum opnir allri flugumferð.
Tímabil lokunar í Reykjavík og Keflavík fyrir blindflugsumferð er óviss, en miðað við spá má gera ráð fyrir að lokunin standi frá því fljótlega eftir miðnætti 23. apríl og í a.m.k. 12 tíma.
Þetta er í fyrsta skiptið sem loftrýmið í kringum þessa tvo stærstu alþjóðaflugvelli landsins lokast frá því í upphafi goss á Fimmvörðuhálsi í mars.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
